Segja að Tudor stýri Tottenham á móti Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2026 13:32 Igor Tudor, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur, var niðurlútur á hliðarlínunni í tapinu á móti Atletico De Madrid í gærkvöldi. Getty/Dennis Agyeman Knattspyrnustjórinn Igor Tudor mun stýra Tottenham í úrvalsdeildarleiknum gegn Liverpool á sunnudag þrátt fyrir vaxandi þrýsting á stöðu hans.
Erlendir miðlar segja frá því að Tudor verði á blaðamannafundinum fyrir leikinn og stýri síðan liðinu í næsta leik. Hann er samt enn mjög valtur í sessi. Fjögur töp í fjórum leikjum Króatinn hefur tapað öllum fjórum leikjum sínum sem bráðabirgðastjóri eftir að Thomas Frank var rekinn í síðasta mánuði. Tudor sætti háværri gagnrýni eftir að hafa skipt markverðinum Antonín Kinsky af velli eftir aðeins sautján mínútur í fyrri leik sextán liða úrslita Meistaradeildarinnar gegn Atlético Madrid í gærkvöldi. 🚨 Tottenham confirm Igor Tudor is now scheduled to take his press conference on Friday ahead of the Liverpool match, @AlasdairGold reports. pic.twitter.com/GYDiNyjQZC— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) March 11, 2026 Tudor mun hitta fyrir fjölmiðla á hefðbundnum blaðamannafundi sínum fyrir leik á föstudag og heimildir ESPN herma að búist sé við að Tudor verði áfram á hliðarlínunni í leiknum á Anfield um helgina eins og staðan er núna. Hafa ekki unnið deildarleik síðan 28. desember Háttsettir aðilar hjá Spurs hafa samt áhyggjur af stöðunni þar sem liðið er aðeins einu stigi fyrir ofan fallsæti og hefur ekki unnið úrvalsdeildarleik síðan 28. desember. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem félagið tapar sex leikjum í röð í öllum keppnum. Tottenham hefur gengið afleitlega í fjórum leikjum Tudors, fengið á sig 14 mörk í þeim, og sumir hafa efast um stjórnunarhætti hans eftir að hann virtist hunsa Kinsky þegar hann fór af velli í Madríd. Le début d’Igor Tudor à Tottenham tourne au cauchemar… 😬❌ 4-1 vs Arsenal❌ 2-1 vs Fulham❌ 3-1 vs Crystal Palace❌ 5-2 vs Atlético Madrid4 matchs.4 défaites.Prochain adversaire : Liverpool. pic.twitter.com/2wkokdL2pw— La Minute Foot (@La_Minute_Foot) March 10, 2026 Spurs var 3-0 undir þegar Kinsky gerði tvö skelfileg mistök, hann rann í fyrsta markinu og gaf síðan Julián Álvarez auðvelt mark eftir að hafa sparkað boltanum í eigin stoðfót. „Fyrir leikinn var þetta rétta ákvörðunin á svona augnabliki, með þann þrýsting sem er á Vicario, í annarri keppni,“ sagði Tudor á eftir. Fyrir mér var þetta rétt ákvörðun „Toni er mjög góður markvörður. Fyrir mér var þetta rétt ákvörðun. Eftir á er auðvitað auðvelt að segja að þetta hafi ekki verið rétt ákvörðun. Svo ég útskýrði þetta líka fyrir Tony, talaði við hann á eftir: hann er rétti maðurinn og góður markvörður.“ „Það sem gerðist er mjög sjaldgæft. Ég hef þjálfað í fimmtán ár, ég hef aldrei gert þetta. Það var nauðsynlegt til að vernda manninn, vernda liðið. Ótrúlegar aðstæður, ekkert um það að segja,“ sagði Tudor. 🚨 Igor Tudor on Tottenham staying in the Premier League and not getting relegated: “100%”. 💯 pic.twitter.com/nNlmgaMv4O— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) February 20, 2026
Enski boltinn Tottenham Hotspur Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Enski boltinn Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira