Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Árni Sæberg skrifar 11. mars 2026 14:01 Ísidór Nathansson (fremri) og Sindri Snær Birgisson (aftari) þegar ný ákæra var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þeir neituðu báðir sök. Vísir/Vilhelm Hæstiréttur hefur ómerkt sýknudóm þeirra Sindra Snæs Birgissonar og Ísidórs Nathanssonar í hryðjuverkamálinu svokallaða. Málinu var vísað aftur til Landsréttar til meðferðar.
Sindri Snær var ákærður fyrir tilraun til hryðjuverka og Ísidór hlutdeild í tilraun hans. Dómur þess efnis var kveðinn upp klukkan 14 og hann má lesa hér. Í stuttu máli taldi Hæstiréttur að ágallar hefðu verið á túlkun Landsréttar á sönnunarkröfum almennra hegningarlaga svo og á aðferð við sönnunarmat og samningu hins áfrýjaða dóms sem voru til þess fallnir að hafa veruleg áhrif á niðurstöðu málsins. Verjendur renna yfir dóminn.Vísir/Vilhelm Þar sem Hæstiréttur gæti ekki endurmetið niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sönnunargildi munnlegs framburðar hafi verið óhjákvæmilegt vegna framangreindra annmarka að ómerkja hinn áfrýjaða dóm í heild sinni og vísa málinu aftur til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný. Kom á óvart Einar Oddur Sigurðsson, verjandi Ísidórs, segir að dómur Hæstaréttar hafi komið verulega á óvart. Ómerkingarkrafa ákæruvaldsins hafi lítið komið við sögu í málflutningi fyrir Hæstarétti. Vel á fjórða ár sé liðið frá handtöku Ísidórs og því sé niðurstaðan vonbrigði. Ómögulegt að segja til um hvenær málinu lýkur Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir aftur á móti að niðurstaðan hafi ekki endilega komið á óvart, hún hafi fyrir fram talið allar þrjár mögulegar niðurstöður jafnlíklegar. Framundan sé málsmeðferð frá grunni fyrir Landsrétti og ómögulegt sé að skjóta á hversu langan tíma hún muni taka. Ákæruvaldið muni fara fram á refsingu en erfitt sé að meta hversu þunga refsingu eigi að fara fram á, þar sem dómafordæmi séu engin hér á landi. Vopnalagabrotin komu ekki til skoðunar Í Landsrétti hlaut Sindri átján mánaða fangelsisdóm og Ísidór fimmtán mánaða dóm fyrir vopnalagabrot. Sá hluti málsins var ekki skoðaður fyrir Hæstarétti. Ríkissaksóknari fór fram á að dómi Landsréttar yrði áfrýjað til Hæstaréttar. Tvímenningarnir hefðu verið ranglega sýknaðir af hryðjuverkaákærunni og dómurinn því bersýnilega rangur. Þar að auki sagði Ríkissaksóknari að mikilvægt væri að fá úrlausn Hæstaréttar í málinu. Hæstiréttur féllst á þau rök og samþykkti að taka málið fyrir í maí í fyrra. Handteknir fyrir 1.267 dögum Eftir að þeir Sindri Snær og Ísidór voru voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum 21. september árið 2022 sagði lögreglan að þeir væru grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk sem ættu að beinast að borgurum og stofnunum ríkisins. Lögreglan lagði hald á töluvert magn skotvopna og skotfæra ásamt þrívíddarprentara, þar á meðal AK-47 og AR-15-árásarriffla. Þeir voru ákærðir snemma árs 2023 en í mars sama ár var ákærunni vísað frá vegna óskýrleika. Héraðssaksóknari lagði fram nýja ákæru á hendur þeim um miðjan júní sama ár og í henni var ætlaðri skipulagningu hryðjuverka lýst ítarlega. Ítarlega reifun ákærunnar má lesa í fréttinni hér að ofan. Fréttin hefur verið uppfærð.
Hryðjuverkamálið Dómsmál Hryðjuverkastarfsemi Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira