Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Aron Guðmundsson skrifar 10. mars 2026 21:12 Rikki G lýsir leik Atletico Madrid og Tottenham sem nú stendur yfir í beinni útsendingu á Sýn Sport 2 Tottenham er í martraðarlandi gegn Atletico Madrid í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu sem nú stendur yfir. Rikki G, sem lýsir leik liðanna á Sýn Sport 2, gagnrýndi meðferð Igor Tudor, knattspyrnustjóra Tottenham, á einum leikmanni liðsins harðlega í beinni útsendingu.
Klippa: Eldræða Rikka G í beinni Það hefur hvorki gengið né rekið hjá Tottenham upp á síðkastið í ensku úrvalsdeildinni þar sem liðið er í harðri fallbaráttu og nú, í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu er gjörsamlega verið að ganga frá liðinu. Atletico Madrid komst í stöðuna 3-0 snemma í fyrri hálfleik og það var þá sem knattspyrnustjóri Tottenham, Igor Tudor, hafði séð nóg og skipti markmanni sínum, hinum 22 ára gamla Antonín Kinsky af velli fyrir Guglielmo Vicario sem hefur verið aðalmarkvörður Tottenham á tímabilinu. Tékkinn Kinsky hafði ítrekað gerst sekur um slæm mistök í markinu. Tudor ákvað að setja Kinsky í markið fyrir leik liðanna í kvöld og var um að ræða fyrsta leik þessa unga drengs í marki Tottenham í Meistaradeildinni en fyrir hafði hann aðeins spilað tvo leiki í enska deildarbikarnum á tímabilinu. Óhætt er að segja að þessi vinnubrögð Igor Tudor hafi ekki farið vel í Rikka G sem lýsir leik Atletico Madrid og Tottenham á Sýn Sport 2. Hann lét Tudor heyra það í beinni. Kinsky var tekinn af velli á sautjándu mínútu og fór beint inn til búningsherbergja. Margir af varamönnum Tottenham fóru á eftir honum inn leikmannagöngin.Vísir/Getty „Ég fullyrði það að þetta kostar Igor Tudor starfið. Ég skal líka fullyrða að það er ekki nokkurt einasta félag á einhverju háu gæðastigi sem er að fara ráða Igor Tudor. Að gera drengnum þetta. Þetta er bara ljótt.“ Umræddum leik lauk með 5-2 sigri Atletico Madrid. Liðin mætast öðru sinni eftir viku.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Tottenham Hotspur Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Salah mættur til Tyrklands Fótbolti „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Sjá meira