„Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 6. mars 2026 15:01 Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar. aðsend Formaður Landverndar telur áform umhverfisráðherra um að rýmka heimildir til eignarnáms fyrir þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir til þess gert að grafa undan náttúruvernd og réttindum landeigenda. Hún sakar ríkisstjórnina um að vaða áfram með æðibunugangi.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tilkynnti í gær á þingi Samtaka iðnaðarins áform um að breyta lögum með það fyrir stafni að landeigendur geti ekki komið í veg fyrir þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir með því að neita framkvæmdaaðilum um leyfi. Hann sagði það óviðunandi og óþolandi að mikilvægar framkvæmdir tefjist um mörg ár vegna langvarandi ágreinings við landeigendur. Þess í stað verði heimild til eignarnáms rýmkuð. Jóhann vísaði til að mynda til tafa á framkvæmdum við Hvammsvirkjun. Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, geldur varhug við áformunum. „Mér finnst þessi áform sýna mjög vel þá stefnu að keyra eigi áfram framkvæmdir, jafnvel óafturkræfar, með valdi. Það hefur verið haft eftir ráðherra að of mikið samráð geti hægt um of á framkvæmdunum og þarna á líka að sýna landeigendum að þeir eiga yfir sér valdbeitingu ef ekki nást sættir.“ Frá framkvæmdum við Hvammsvirkjun síðastliðið sumar.Anton Brink Þróunin sé alvarleg að hennar mati og telur hún hættu steðja að náttúruvernd og samfélagslegri sátt. Óhóflega sé gengið á réttindi landeigenda og grafið undan samningsstöðu þeirra. „Það er bara alveg ljóst að farið verði af stað með framkvæmdir ef ekki er búið að ná sáttum. Orðræðan í kringum þetta er ekki traustvekjandi. Mér þykir að það sé verið að vaða áfram með æðibunugangi sem hefur verið einkennandi fyrir þessa ríkisstjórn í þessum málum.“ Hún bendir á að auðvitað þurfi að bíða eftir því að sjá hvernig þetta verður útfært í væntanlegu frumvarpi. „Auðvitað viljum við öll að það séu byggðar upp línur og Landvernd hefur verið mjög jákvæð í garð uppbyggingar flutningskerfisins. Að sama skapi held ég að það sé mjög varhugavert að vaða áfram með valdi. Ég held að það muni ekki gefa góða raun því ósætti getur kraumað og valdið meiri mótstöðu.“
Umhverfismál Orkumál Deilur um Hvammsvirkjun Vatnsaflsvirkjanir Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira