Fær Barbie-útgáfu af sér fyrir Íslandsleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2026 08:33 Chloe Kelly með Barbie-dúkkuna af sér sem er í enska landsliðsbúningnum. @chloekelly Ísland mætir Englandi á morgun í undankeppni HM kvenna í fótbolta en þetta er annar leikur liðanna í riðlinum. Einn leikmanna enska landsliðsins er að upplifa sérstök tímamót í þessum landsliðsglugga.
Meðal leikmanna enska liðsins er nefnilega ein af hetjum liðsins frá síðustu tveimur Evrópumeistaramótum. Chloe Kelly tryggði enska landsliðinu Evrópumeistaratitilinn 2022 með því að skora sigurmarkið í úrslitaleiknum eftir að hafa komið inn á sem varamaður og á EM 2025 tryggði hún enska landsliðinu annað Evrópugullið aftur með því að skora úr úrslitaspyrnunni í vítakeppninni. View this post on Instagram A post shared by W Golazo (@wgolazo) Kelly er nú orðin fyrsta enska knattspyrnukonan til að fá sína eigin Barbie-dúkku, en hún hlaut viðurkenningu frá Mattel í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Þessi 28 ára gamli leikmaður er hylltur fyrir að vera fyrsti leikmaðurinn til að skora tvö úrslitamörk í tveimur stórum alþjóðlegum úrslitaleikjum og fyrir að vera innblástur fyrir næstu kynslóð. „Að fá mína eigin, einstæðu Barbie-dúkku er eitthvað sem ég er ótrúlega stolt af. Þegar ég var að alast upp dreymdi mig um að vinna titla og upplifa stórar stundir í fótbolta, en ég ímyndaði mér aldrei annars konar áfanga eins og þennan,“ sagði Chloe Kelly. Kelly er þarna í hópi með tenniskonunni Serenu Williams, geimfaranum Kellie Gerardi, ökuþórnum Reginu Sirvent Alvarado, söngkonunni Helenu Fischer, fjallakonunni Zoju Skubis, brimbrettakonunni Stephanie Gilmore og krikkterkonunni Smriti Mandhana sem fengu líka allar Barbie-útgáfu af sér. View this post on Instagram A post shared by The Sportess (@thesportess)
HM 2027 í Brasilíu Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira