Viktor fagnaði fyrsta sigrinum gegn félögum sínum í Magdeburg Sindri Sverrisson skrifar 5. mars 2026 21:57 Gísli Þorgeir Kristjánsson í kröppum dansi gegn Barcelona í kvöld. Getty/Ronny Hartmann Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í Barcelona urðu í kvöld fyrsta liðið til að vinna Magdeburg í Meistaradeild Evrópu í handbolta á þessari leiktíð, í sannkölluðum stórleik í Þýskalandi. Fjöldi Íslendinga var á ferðinni í keppninni í kvöld.
Viktor Gísli fékk að spila nokkuð miðað við tölfræði EHF og varði tvö af ellefu skotum sem hann fékk á sig. Hann var því með betri niðurstöðu en Daninn Emil Nielsen sem varði fjögur af 24 skotum sem hann fékk á sig, samkvæmt EHF. Viktor Gísli Hallgrímsson mætti félögum sínum úr landsliðinu í kvöld.EPA/JOHAN NILSSON Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fimm marka Magdeburgar og Ómar Ingi Magnússon þrjú. Elvar Örn Jónsson er að snúa aftur eftir meiðslin á EM í janúar og var á leikskýrslu en ekki á meðal markaskorara. Sigurinn kom Börsungum upp fyrir Magdeburg á topp B-riðils nú þegar ein umferð er eftir af riðlakeppninni. Liðin eru bæði örugg um að fara beint áfram í 8-liða úrslitin. Janus Daði markahæstur Í B-riðlinum varð Janus Daði Smárason hins vegar að sætta sig við tap, þrátt fyrir að verða markahæstur með sjö mörk, þegar GOG sótti tvö stig gegn Pick Szeged með 37-34 sigri. Í A-riðlinum tapaði Íslendingaliðið Kolstad í botnslag gegn Dinamo Búkarest, 33-23, á útivelli. Ljóst er að bæði lið falla úr keppni. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur marka Kolstad en Benedikt Óskarsson átti eitt skot og skoraði ekki úr því. Sigurjón Guðmundsson varði þrjú af fjórtán skotum sem hann fékk á sig. Bjarki Már Elísson var ekki með Veszprém vegna meiðsla, þegar liðið tapaði 33-31 gegn Nantes í Frakklandi. Veszprém og Nantes eru því jöfn að stigum í 4.-5. sæti fyrir lokaumferðina, stigi á eftir Kielce og tveimur fyrir ofan Sporting.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira