Erlent

Ísrael og Banda­ríkin ráðast á Íran

Jón Þór Stefánsson og Samúel Karl Ólason skrifa
Mynd frá vettvangi í Tehran.
Mynd frá vettvangi í Tehran. Getty

Ísrael og Bandaríkin hafa hafið árás á Íran. Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraelsríkis, staðfestir það og segir árásina fyrirbyggjandi. Donald Trump hefur jafnframt birt ávarp um málið.

Myndir frá Tehran, höfuðborg Íran, sýna að mikinn reyk liggur frá byggingum í borginni. Samkvæmt Írönskum fjölmiðlum hafa bæði orðið sprengingar í austur og norðurhluta borgarinnar, sem og í fjórum öðrum borgum.

Lýst hefur verið yfir neyðarástandi í Ísrael vegna mögulegra gagnárása.

Fylgst er með gangi mála í Vaktinni hér að neðan. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×