Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Ritstjórn skrifar 2. mars 2026 06:45 Gabríel Douane Boama við aðalmeðferð í héraðsdómi 2023. Gabríel Douane Boama hefur verið ákærður fyrir þrjú brot gegn valdstjórninni, með því að hafa ráðist á þrjá fangaverði og slegið í höfuð á Litla-Hrauni á föstudegi í ágúst árið 2024. Hann er sagður hafa notað armbandsúr með málmól sem hnúavopn við árásirnar.
Þetta kemur fram í ákæru á hendur Gabríel en aðalmeðferð í málinu fer fram í apríl næstkomandi. Einn fékk heilahristing Hann er ákærður fyrir að hafa slegið einn fangavörðinn hnefahöggum í höfuð og í kjölfarið fellt hann í jörðina, með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð á hvirfli, skrapsár á handarbak og bólgur í liðpoka axlar. Annan fangavörðinn hafi hann slegið í höfuð og líkama, með þeim afleiðingum að hann hlaut roða, hrufl og bólgu á eyra og eymsli í höfði og hnakka. Þann þriðja hafi hann slegið hnefahöggum í höfuð, með þeim afleiðingum að hann hlaut heilahristing, mar og bólgu við vinstra eyra og áverka á handarbak. Öll þessi brot eru heimfærð undir ákvæði hegningarlaga um brot gegn valdstjórninni, en slík brot varða allt að átta ára fangelsi, að því gefnu að þau beinist gegn opinberum starfsmanni sem hefur heimild til valdbeitingar. Fangaverðir hafa slíka heimild. Ákæruvaldið krefst þess að Gabríel verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Sætti agaviðurlögum í fangelsinu Vísir greindi frá árásunum daginn eftir að þær voru framdar og ræddi við Pál Winkel, þáverandi fangelsismálastjóra. „Það var atvik á Litla-Hrauni í gær þar sem fangi veittist að nokkrum fangavörðum með þeim afleiðingum að þrír þeirra slösuðust þannig að þeir þurftu að fara á sjúkrahús til að láta gera að sárum sínum. Ég vonast til að þeir nái sér að fullu en þetta var slæmt atvik,“ sagði hann. Hann kvaðst sjálfur hafa gert sér ferð austur á Litla-Hraun vegna málsins en starfsfólk og stjórnendur sem voru á vettvangi hafi unnið vel úr aðstæðum. „Þetta hefur auðvitað þær afleiðingar að þessi einstaklingur mun sæta agaviðurlögum. Núna er staðan einfaldlega þannig að við rekum þarna í rauninni tvo öryggisganga í fangelsinu á Litla-Hrauni þar sem við erum búin að breyta verklagi og það sýnist mér komið til þess að vera.“ Fossblæddi að sögn annars fanga DV ræddi málið við Hrannar Fossberg Viðarsson, samfanga Gabríels á þeim tíma sem hann framdi árásirnar, tveimur dögum eftir atvikið. „Það fossblæddi úr andlitinu á einum fangaverðinum,“ er haft eftir honum. Að hans sögn hafi Gabríel og vinur hans verið með „einhver fíflalæti“ sem hafi orðið til þess að fangaverðir höfðu afskipti af þeim og meinað þátttöku í útivist fanga. Hávaðarifrildi hafi þá hafist og endað með því að einn fangavarðanna tók upp úðavopn. Þá hafi Gabríel sett armbandsúrið á hnúann og beitt gegn fangavörðunum, líkt og lýst er hér að framan. Langur sakaferill þrátt fyrir ungan aldur Þrátt fyrir að vera aðeins 24 ára hefur Gabríel brotið ansi oft af sér. Hann var á forsíðum fjölmiðla þegar hann strauk úr haldi fangavarða árið 2022 og hefur síðan þá ítrekað ratað í fréttir. Hann losnaði til að mynda úr fangelsi þann 3. febrúar síðastliðinn eftir að hafa afplánað dóm og var handtekinn strax helgina eftir, grunaður um hnífstunguárás. Örfáum dögum síðar var hann dæmdur fyrir líkamsárás, sem hann framdi í félagi við yngri bróður sinn. Þá eru vandræði hans ekki alveg upp talin þar sem málflutningur í máli Héraðssaksóknara á hendur honum og fimm öðrum fór fram þann 26. janúar. Í því eru mennirnir sex ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, húsbrot og eignarspjöll, með því að hafa aðfaranótt laugardags í september árið 2021, í félagi, ruðst í heimildarleysi inn í íbúð í húsi við Holtagerði í Kópavogi og veist þar með ofbeldi að fjórum mönnum, sem þar voru staddir, og slegið og sparkað í höfuð þeirra og víðs vegar um líkama þeirra og veist einnig að þeim með hættulegum vopnum og bareflum, þar á meðal hömrum og hnífum, ásamt því að valda tjóni á húsnæðinu, meðal annars með því að brjóta gler í útidyrahurð, þannig að glerbrot féllu yfir og slösuðu þá sem fyrir innan voru, og skemma innihurð. Samkvæmt lögum um meðferð sakamála ætti dómur þegar að vera fallinn í málinu en dómur í því hefur í það minnsta ekki verið birtur.
Dómsmál Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira