Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Árni Sæberg skrifar 24. febrúar 2026 13:32 Jón Arnór, Magnús Sverrir og Óttar. Vísir Óttar Helgason og Jón Arnór Stefánsson voru látnir hætta störfum hjá einkabankaþjónustu Fossa vegna eignarhluta þeirra í félagi sem hefur verið í viðskiptum við einkabankaþjónustuna. Einn eigenda félagsins er Magnús Sverrir Þorsteinsson, kenndur við bílaleiguna Blue Car Rental.
Þetta herma heimildir Vísis en Innherji greindi frá starfslokum þeirra Óttars, sem var forstöðumaður einkabankaþjónustunnar, og Jóns Arnórs, sem var viðskiptastjóri á sviðinu, fyrr í mánuðinum. Félagið sem um ræðir heitir Trofana ehf. og skráður tilgangur þess er starfsemi eignarhaldsfélaga. Samkvæmt nýjasta, og raunar eina ársreikningi félagsins, fyrir árið 2024 eru eigendur félagsins M&G Fjárfestingar ehf., SB3 ehf., JAS9 ehf. og Vatnaniður ehf. Eigendur og fjármálastjóri bílaleigunnar Eigendur M&G Fjárfestinga eru þau Magnús Sverrir Þorsteinsson og Guðrún Sædal Björgvinsdóttir. Þau eru helst þekkt fyrir að eiga saman 90 prósent af bílaleigunni Blue Car Rental í Keflavík, sem segja mætti að hafi gengið vel í gegnum tíðina. SB3 er í eigu þeirra Birgis Ólafssonar, fjármálastjóra bílaleigunnar, og Söndru Lindar Þrastardóttur. Þessi tvö félög eiga hvort um sig 25 prósent af hlutafé Trofana í A-flokki. JAS9 og Vatnaniður eiga aftur á móti fjórðungshlut hvort í B-flokki. Samkvæmt samþykktum félagsins er munurinn sá að hlutafé í A-flokki fylgir atkvæðisréttur en ekki hlutafé í B-flokki. JAS9 er, eins og körfuboltaáhugamenn sjá glögglega, í eigu Jóns Arnórs og Vatnaniður í eigu Óttars. Félagið í viðskiptum hjá Fossum Áðurnefndur Magnús Sverrir hefur um árabil verið stór kúnni hjá einkabankaþjónustu Fossa og samkvæmt heimildum varð engin breyting þar á þegar félagið Trofana var stofnað árið 2024. Þannig var félag sem þeir Óttar og Jón Arnór áttu helmingshlut í viðskiptavinur sviðsins sem þeir annars vegar stýrðu og hins vegar unnu á. Á stofnárinu og eina árinu sem ársreikningur hefur verið birtur fyrir, 2024, keypti Trofana verðbréf fyrir um 160 milljónir króna og hagnaðist um 27 milljónir. Þessi viðskipti eru brot á innri reglum Fossa og því voru þeir Óttar og Jón Arnór látnir fara. Steingrímur Arnar Finnsson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka, segir í samtali við Vísi að starfslok þeirra séu trúnaðarmál og að hann geti ekki tjáð sig um þau. Hann vísar í tilkynningu á vef Fossa, sem vakti nokkra athygli á sínum tíma og hljóðar svo: „Óttar Helgason og Jón Arnór Stefánsson, viðskiptastjórar einkabanka, hafa látið af störfum.“ Óttar segir að hann hafi gert starfslokasamning við Fossa sem sé háður trúnaði og hann geti því ekki sagt neitt um málið. Jón Arnór vildi ekki tjá sig um málið að neinu leyti þegar eftir því var leitað. Magnús Sverrir kvaðst ekki telja það sitt að svara fyrir málið.
Fjármálafyrirtæki Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Fleiri fréttir Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Sjá meira