Mælir gegn heilskimun Intuens Bjarki Sigurðsson skrifar 23. febrúar 2026 12:33 Halla Þorvaldsdóttir er framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Vísir/Sigurjón Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins mælir gegn því að fólk fari í heilskimun hjá fyrirtækinu Intuens. Vísindin séu ekki með fyrirtækinu í liði. Það sé ósiðlegt að fyrirtækið hafi markaðsett sig gagnvart aðstandendum krabbameinssjúkra.
Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins mælir gegn því að fólk fari í heilskimun hjá fyrirtækinu Intuens. Vísindin séu ekki með fyrirtækinu í liði. Það sé ósiðlegt að fyrirtækið hafi markaðsett sig gagnvart aðstandendum krabbameinssjúkra. Heilskimanir fyrirtækisins Intuens hafa verið gagnrýndar af þó nokkrum sérfræðingum úr heilbrigðiskerfinu síðustu daga. Skimunin er sögð geta greint kvilla og sjúkdóma áður en þeir gera vart við sig en félag krabbameinslækna segir hana gera meiri skaða en gagn. Hún ýti undir falskt öryggi og heilsukvíða. Framkvæmdastjóri Intuens hefur vísað gagnrýninni á bug og segir fólk eiga rétt á að taka upplýstar ákvarðanir varðandi sína heilsu. Alltaf hægt að finna eitthvað Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, segir einungis þrenns konar skimanir hafa verið metnar gagnlegar. Heilskimunin sé ekki ein þeirra. „Í öllum þessum tilfellum er verið að skima eftir ákveðnum krabbameinum. Í því sem Intuens er að bjóða upp á eru rannsóknir þar sem er bara verið að leita að einhverju. Þegar fólk fer út að leita að einhverju, eru líkur á að eitthvað finnist. En það er engin vísindaleg þekking sem bendir til þess að svona leit sé gagnleg, og alls ekki að krabbameinum,“ segir Halla. Mælir gegn heilskimun Fólk eigi að leita í skimanirnar sem búið er að sannreyna. „Ég myndi bara alls ekki mæla með þessu. Ég myndi mæla gegn því. Það er engin vísindaleg þekking sem bendir til þess að það sé gagnsemi af þessu,“ segir Halla. Ósiðleg markaðssetning Um helgina var rifjað upp þegar Kraftur, stuðningsfélag ungs fólks með krabbamein, bauð aðstandendum krabbameinssjúkra tilboð í heilskimun árið 2023. Í samtali við fréttastofu segir Sólveig Ása Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Krafts, að félagið sé ekki í samstarfi við Intuens í dag. Kraftur einbeiti sér að því að sinna jafningjastuðningi og fræðslu fyrir félagsfólk. „Ég get ekki svarað fyrir þetta nákvæmlega. Ég veit ekki hvernig skilaboðin voru nákvæmlega. En það er vægast sagt óheppilegt og auðvitað ósiðlegt ef fyrirtæki ætlar sér að markaðssetja sig sérstaklega gagnvart hópum sem eru viðkvæmir fyrir. Það á við um fólk sem hefur haft krabbamein mjög nærri sér í lífinu. Það er fyrir neðan allar hellur,“ segir Halla.
Heilskimanir Krabbamein Heilbrigðismál Heilsa Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Sjá meira