Framboðið heitir Vinstrið og Finnur verður í sjötta sæti Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. febrúar 2026 11:10 Sanna Magdalena leiðir lista Vinstrisins í borgarstjórnarkosningunum. Svandís Svavarsdóttir er formaður VG en lætur af embætti í næsta mánuði. Vísir/Anton Brink Sameiginlegt framboð Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og Vors til vinstri í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum heitir Vinstrið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vori til vinstri. „
Leiðarljós Vinstrisins er einfalt. Reykjavík á að vera borg fyrir okkur öll. Markmið okkar er að byggja samfélag þar sem gott er að búa á öllum aldri, óháð stöðu, kyni, efnahag eða uppruna. Við trúum því að með félagslegum lausnum sem nýtast heildinni megi tryggja öllum íbúum mannsæmandi húsnæði og jafnt aðgengi að þjónustu og innviðum,“ segir í tilkynningunni. „Með því að sameinast undir þessu skýra nafni eru send afgerandi skilaboð um samstöðu. Nafnið dregur fram kjarna samstarfsins, að búa til einn öflugan vettvang fyrir félagshyggjufólk í höfuðborginni og veita skýrt andsvar við hægri sveiflunni í samfélaginu.“ Sanna Magdalena Mörtudóttir, frá Vori til vinstri, mun leiða sameiginlegan lista framboðsins. Forvali Vinstri grænna í Reykjavík lauk í gær með og mun Líf Magneudóttir skipa efsta sæti Vinstri grænna á hinum sameiginlega lista. Þeir Stefán Pálsson og Finnur Ricart Andrason hlutu annað og þriðja sætið, sem samsvara því þriðja og sjötta á sameiginlegum lista. Fulltrúar Vors til vinstri skipa fyrsta, fjórða og fimmta sæti listans en Vintri græn eiga fólk í öðru, þriðja og sjötta sæti. Stefán Pálsson sagðist í færslu á Facebook í gær vera aðeins meyr eftir kröftugt forval VG með metþátttöku. „Líf hélt sæti sínu sem oddviti okkar, sem mér finnst mikilvægt. Finnur Ricard er þó spútnik forvalsins. Hann er örugglega aumur í kvöld en í raun má hann vera stoltur af því, hálfþrítugur maðurinn, að hafa farið nærri því að sigra fólk sem er töfalt eldra og hefur verið í flokknum frá því að völvan var ung og sæt.“ Miðað við fylgi vinstri flokkanna í nýjustu könnunum næði flokkurinn aðeins inn einum borgarfulltrúa. „Vor til vinstri vinnur nú að endanlegri uppstillingu sinna fulltrúa og mun sameiginlegur listi Vinstrisins í heild sinni, ásamt ítarlegri málefnaskrá, líta dagsins ljós á næstunni!“
Vinstri græn Vor til vinstri Vinstrið Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bein útsending: Samtal um framtíðina Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira