Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Jón Þór Stefánsson skrifar 22. febrúar 2026 23:53 Austin Tucker Martin var 21 árs gamall. Maðurinn sem var skotinn til bana við Mar-a-Lago, glæsihýsi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, í dag var 21 árs gamall og hafði nýlega stofnað fyrirtæki sem sérhæfði sig í handteiknuðum listrænum myndum af golfvöllum.
Hann hét Austin Tucker Martin og var frá bænum Cameron í Norður Karólínuríki. Líkt og greint var frá í dag var Martin skotinn til bana af öryggissveit Bandaríkjaforseta, Secret Service. Það gerðist innan við norðurinngang Mar-a-Lago í Flórídaríki. Martin mun hafa haldið á haglabyssu og eldsneytisbrúsa. Öryggisverðir hafi beðið hann um að leggja báða hlutina frá sér, en hann einungis sleppt brúsanum. Hann hafi svo verið skotinn eftir að hann lyfti byssu sinni upp og mundaði hana líkt og hann ætlaði að skjóta. Sjá nánar: Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Lögreglan getur ekki séð í sínum gögnum að Martin hafi áður komist í kast við lögin. Ekki liggur fyrir hvernig Martin komst yfir haglabyssuna sem hann var með. Trump var ekki í Mar-a-Lago þegar þetta átti sér stað. „Virkilega ólíkt honum“ Martin er talinn hafa ekið frá Norður Karólínu til Flórída um síðastliðið laugardagseftirmiðdegi. Fjölskyldumeðlimir hans, þar á meðal móðir hans, höfðu um helgina birt færslur á Facebook þess efnis að hann væri týndur. Í morgun, nokkru eftir að Martin var skotinn til bana, birti móðir hans færslu þar sem hún bað fólk um að hjálpa sér að „finna drenginn sinn.“ Þá benti hún á að líklega væri hann akandi um á silfruðum Volkswagen Tiguan, af árgerðinni 2013. Slíkur bíll fannst ekki langt frá vettvangi. Fjölmiðlar vestanhafs benda jafnframt á færslu sem talin er koma frá frænku Martins, þar sem fullyrt hafi verið að „þetta væri virkilega ólíkt honum“. Glæsihýsi Trumps í Flórída heitir Mar-a-Lago.Getty Martin útskrifaðist úr menntaskóla, Union Pines High School, árið 2023. Hann var skráður á kjörskrá, en þar var ótilgreind hvaða flokk hann styddi. Braeden Fields, frændi hans, sagði við AP-fréttastofuna að Martin kæmi úr fjölskyldu mikilla Trump-stuðningsmanna. Sá sagði jafnframt að Martin hafi unnið á golfvelli og sent hluta af launagreiðslum sínum til góðgerðarmála. Síðasta sumar stofnaði hann fyrirtækið Fresh Sky Illustrations sem, líkt og áður segir, sérhæfir sig í handteiknuðum listaverkum af golfvöllum. Hann mun hafa birt slíkar myndir reglulega á Facebook, síðast á fimmtudag.
Bandaríkin Donald Trump Erlend sakamál Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira