Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 21. febrúar 2026 13:55 Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna segir að þriggja ára skoðun á íslenskum tryggingamarkaði sýni að hægt sé að hagræða verulega sem geti skilað neytendum verulegum ábata. Samtökin leggja til margvíslegar úrbætur á kerfinu. Vísir Neytendur gætu sparað sér háar fjárhæðir ef farið yrði í úrbætur á íslenskum tryggingamarkaði að mati Neytendasamtakanna. Bótakerfi tryggingafélaganna sé óþarflega flókið og fáir hafi yfirsýn yfir alla anga þess. Formaður Neytendasamtakanna segir umtalsvert svigrúm til hagræðingar, einföldunar og aukins gagnsæis.
Neytendasamtökin hafa síðustu þrjú ár unnið að úttekt á íslenska vátryggingamarkaðnum eða á tryggingafélögunum Sjóvá- Almennum, TM, Verði og VÍS. Niðurstöður hafa verið birtar í þremur skýrslum. Flókið tryggingakerfi Breki Karlsson formaður samtakanna segir að meðal þess sem hafi komið í ljós sé að einfalda þurfi bótakerfið. „Helstu niðurstöður okkar eru að bótakerfið er óþarflega flókið. Fáir hafa í raun nauðsynlega yfirsýn yfir alla anga þess. Það væri hægt að greiða úr þessum flækjum með ákveðnum aðgerðum og gera það mun skilvirkara og ódýrara fyrir neytendur,“ segir Breki. Erfitt sé fyrir neytendur að átta sig á því hvernig vátryggingarétturinn virkar. „Það þarf að einfalda fólki að sækja um bætur en í dag þarf að fara á marga staði með mismunandi viðmið vegna sama tjóns. Við leggjum til að ein stofnun haldi utan um öll slík mál líkt og á við á öðrum Norðurlöndum,“ segir Breki. Heimilin gætu sparað sér verulega fjármuni Neytendasamtökin telja að með skýrari afmörkun bótaskyldu, samræmdara matsferli og aukinni samkeppni væri unnt að lækka kostnað, bæta virkni kerfisins og tryggja sanngjarnari skiptingu ávinnings. „Við teljum t.d. að örorkumat eigi að vera samræmt og á einni hendi. Við gjöldum jafnframt varhug við árangurstengingu þóknana lögmanna í minni málum eins og í nágrannalöndum okkar. Þá þarf að kanna hvort árangurstenging launa sölufólks séreignartrygginga skapi óæskilegan hvata í sölu trygginga,“ segir Breki. Breki bendir á að meðalheimili verji að minnsta kosti 400 þúsund krónum á ári í tryggingar. Ef farið verði að tillögum Neytendasamtakanna muni heimilin geta sparað umtalsverðar fjárhæðir „Verði ráðist í úrbæturnar gæti sparnaður fyrir heimilin numið tugum prósenta í útgjöldum til trygginga,“ segir Breki að lokum.
Tryggingar Fjármál heimilisins Fjármálafyrirtæki Neytendur Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira