Atvinnulíf

Gefur fermingamyndinni 10 í ein­kunn

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Elín Tinna Logadóttir, framkvæmdastjóri 66°Norður Íslandi gefur fermingamyndunum sínum 10 í einkunn því í dag sér hún hversu frábært það er að aðeins 13 ára hafi hún þorað að fara sínar eigin leiðir; fermdist í vínrauðum galakjól, með sjal í stíl og eftirlíkingu af Titanic-hálsmeninu um hálsinn.
Elín Tinna Logadóttir, framkvæmdastjóri 66°Norður Íslandi gefur fermingamyndunum sínum 10 í einkunn því í dag sér hún hversu frábært það er að aðeins 13 ára hafi hún þorað að fara sínar eigin leiðir; fermdist í vínrauðum galakjól, með sjal í stíl og eftirlíkingu af Titanic-hálsmeninu um hálsinn. Vísir/Vilhelm

Elínu Tinnu Logadóttur, framkvæmdastjóra 66°Norður á Íslandi, finnst voða notalegt að fara í bað áður en restin af heimilisfólkinu vaknar á morgnana. Þá þegar búin að renna í gegnum helstu tölur gærdagsins.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég vakna yfirleitt um sjöleytið, oft fyrr en eiginlega aldrei seinna. Innbyggða klukkan er orðin mjög vanaföst svo það breytir engu hvort það sé helgi eða virkur dagur.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég vakna fyrst á heimilinu en mér finnst gott að byrja daginn á að renna í gegnum helstu tölur gærdagsins áður en ég fer fram og fæ mér fyrsta kaffibollann, svo finnst mér agalega gott að fara í bað áður en ég ræsi heimilisfólkið og kem öllum út í daginn.“

Hvaða einkunn myndir þú gefa fermingarmyndinni af þér?

Ég elskaði nú ekki fermingarmyndirnar mínar í mörg ár en í dag myndi ég klárlega gefa þeim 10 af 10. Ég fermdist í vínrauðum galakjól með sjal í stíl og eftirlíkingu af Titanic-hálsmeninu um hálsinn.

 Í dag finnst mér það bara geggjað að þessi 13 ára stelpa hafi farið sínar eigin leiðir og ekki farið í hvítu blúnduna eins og flestir aðrir, ákveðin og samkvæm sjálfri mér sem ég tel að sé einn af mínum helstu styrkleikum í dag.“

Elín Tinna á það til að fara úr einu í annað en er sem betur fer stálminnug og ferst því vel að vera með marga bolta á lofti. Skráir þó samviskusamlega allt í Outlook svo ekkert lendi á milli skips og bryggju.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst þessa dagana?

„Það er ótrúlega skemmtilegt ár fram undan hjá okkur hjá 66°Norður þar sem við erum að fagna 100 ára afmæli fyrirtækisins. Það er því hellingur í gangi og alls konar spennandi verkefni, stór samstörf bæði innlend og erlend, flottir viðburðir og nýjar vörur tengdar afmælinu þar sem við sækjum innblástur í ríka arfleifð 66°Norður. Ég ætla kannski ekki að gefa allt upp strax, en það er mikið að gerast og spennandi ár fram undan!

Ég er líka mikil skíðakona, þannig að það hefur verið virkilega gaman að fylgjast með Ólympíuleikunum. Það hefur verið frábært að sjá íslenska hópinn í 66°Norður og sérstaklega í gallanum sem var sérhannaður fyrir leikana og hefur fengið mikla innlenda og erlenda umfjöllun. Maður fyllist stolti þegar maður sér svona verkefni raungerast enda hefur mikil vinna átt sér stað hjá okkur í undirbúningi og margir lögðu hönd á plóg.

Nú er bara að vona að það verði áfram kalt hérna heima svo maður geti sjálfur farið að skíða en ég reyni að nýta hvert tækifæri til að komast á skíði!“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

Ég er ein af þeim sem eru yfirleitt með marga bolta á lofti og tek að mér ýmis hlutverk. Ég á það til að stökkva úr einu í annað en það hentar mér vel. 

Sem betur fer er ég stálminnug og treysti mikið á það, en ég set líka allt samviskusamlega í Outlook svo ég haldi góðu yfirliti og ekkert lendi á milli skips og bryggju. 

Ég er svo heppin að vinna með frábæru teymi og lít á mitt hlutverk fyrst og fremst sem að móta stefnu og styðja við þau, svo þau hafi svigrúm og traust til að blómstra í sínum verkefnum. Ég legg mig jafnframt fram við að vera til staðar fyrir mín teymi og gefa mér alltaf tíma fyrir þau.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég er yfirleitt komin upp í rúm fyrir ellefu, ágætlega kvöldsvæf enda mikilvægt að ná góðum svefni fyrir verkefni næsta dags.“


Tengdar fréttir

Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu

Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, býr með B-týpum og segir því að dagarnir hefjist hjá sér með skipulagðri keðjuvakningu, þar sem hann byrjar á því að vekja konuna með kaffi, hundinn með morgunmat og síðan er það að vekja krakkana.

„Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“

Snorri Björn Sturluson, fasteignasali, lögfræðingur og annar eigandi Valhallar fasteignasölu, tekur slurk í heimilisstörfunum fyrir vinnu á morgnana, þegar hann er of latur til að fara í ræktina. En segist þó almennt vonlaus í heimilisstörfunum og fær því stundum aðstoð við þrifin.

Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“

Hreggviður Steinar Magnússon, Reggie,  framkvæmdastjóri Ceedr, segir stundum þurfa að minna eiginkonuna á háttatímann. Því nú sé hún komin með prjónaveikina frá ömmu sinni. Hreggviður  segir rómantík snúast um að segja ég elska þig á marga ólíka vegu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×