Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. febrúar 2026 13:31 Frá Hjalteyri. Lögmaður vistmanna sem dvöldu á barnaheimilinu við Hjalteyri á áttunda áratugnum hefur gert kröfu um bætur fyrir tjón og miska af völdum rekstraraðila barnaheimilisins á hendur íslenska ríkinu og send forsætisráðherra til meðferðar og lúkninga. Vinnsla málsins hafi strandað í forsætisráðuneytinu í tíð Katrínar Jakobsdóttur.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu frá Gísla Kr. Björnssyni lögmanni. Greint var frá því í september 2023 að gert hefði verið ráð fyrir 410 milljónum króna til uppgjörs sanngirnisbóta vegna Hjalteyrarmálsins en fréttastofa greindi árið 2021 frá kynferðislegu, líkamlegu og andlegu ofbeldi sem tíðkaðist á heimilinu. Í yfirlýsingu lögmanns vistmanna kemur fram að kröfurnar hafi verið lagðar fram áður, vinnslu málsins hafi lokið fljótt og vel af hálfu Jóns Gunnarssonar þáverandi dómsmálaráðherra og starfsmanna ráðuneytisins. Frumvarpinu hafi hinsvegar ekki lokið með þinglegri meðferð, þar sem þáverandi forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir hafi tekið málið til síns ráðuneytis þar sem vinnsla málsins hafi strandað og ekkert af því spurst síðan. „Hátt fer fyrir umræðum um sanngirnisbætur vegna dvalar á öðrum vistheimilum um þessar mundir, en umbjóðendur mínir harma að aðrir einstaklingar hafi þurft að mæta samskonar örlögum, á öðrum vistheimilum. Ljóst er að sami aðilinn ábyrgðist rekstur slíkra heimila; Íslenska ríkið,“ segir í yfirlýsingunni. „Með vísan til alls framangreinds telja umbjóðendur mínir að sanngjarnt sé að ljúka þessum veigamiklu málum með því að Íslenska ríkið bæti sér tjón sitt með greiðslu hámarksbóta sem ákvarðaðar voru með lögum nr. 26/2007, en uppreiknaðar með tilliti til verðlagsþróunar frá þeim tíma til dagsins í dag, að teknu tilliti til frumvarps þáverandi dómsmálaráðherra. Af hálfu umbjóðenda minna er því lýst yfir að slíkar bætur bæta vart það rauntjón sem af dvölinni hlaust. Hins vegar munu þau una þeim málalokum, sé gengið hratt og örugglega til lúkningar málum þeirra.“
Barnaheimilið á Hjalteyri Vistheimili Hörgársveit Tengdar fréttir Hjalteyrarbörnin fá 410 milljónir Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2024 er gert ráð fyrir að 410 milljónum króna verði ráðstafað til uppgjörs sanngirnisbóta vegna Hjalteyrarmálsins. 12. september 2023 14:06 Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Sjá meira
Hjalteyrarbörnin fá 410 milljónir Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2024 er gert ráð fyrir að 410 milljónum króna verði ráðstafað til uppgjörs sanngirnisbóta vegna Hjalteyrarmálsins. 12. september 2023 14:06