Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. febrúar 2026 06:53 Fyrsti fundur Friðarráðsins fer fram í Washington í dag. Getty/Chip Somodevilla Tugir þjóðarleiðtoga og sendinefnda munu mæta á stofnfund Friðarráðs Donald Trump Bandaríkjaforseta í Washington í dag. Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Þýskalands verða hins vegar fjarri góðu gamni, þar sem ríkin hafa afþakkað boð um sæti í ráðinu.
Hið svokallaða Friðarráð hefur verið afar umdeilt enda virðist það öðrum þræði hafa verið stofnað til að grafa undan Sameinuðu þjóðunum. Þá eru föst sæti í ráðinu til sölu fyrir milljarð dala og beinlínis gert ráð fyrir að Donald Trump verði við stjórnvölinn, jafnvel eftir að hann lætur af embætti sem forseti. Ráðið átti upphaflega að snúst um endurreisn Gasa en afar lítið virðist hafa þokast í þeim málum, þrátt fyrir að stórar yfirlýsingar. Þrátt fyrir að vopnahlé sé í gildi er Ísraelsher enn að gera árásir og þá virðist langur vegur í að Hamas afvopnist. Fulltrúar framkvæmdastjórnar teknókrata sem sett var á laggirnar til að hafa umsjón með svæðinu hafa einnig lýst óánægju sinni á samfélagsmiðlum, þar sem þeir segjast ekki hafa vald til að sinna hlutverki sínu. Eins og fyrr segir hafa helstu bandalagsríki Bandaríkjanna í Evrópu hafnað boði um sæti í ráðinu og þá var greint frá því í vikunni að Vatíkanið hefði einnig afþakkað, ekki síst þar sem verkefni þess væru og ættu að vera á forræði Sameinuðu þjóðanna. Viðstaddir verða hins vegar fulltrúar Ísrael, Sádi Arabíu, Sameinuðu arabísku furstadæmana, Tyrklands, Katar, Argentínu og Ungverjalands.
Bandaríkin Donald Trump Palestína Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Sjá meira