„Besta tap ævi minnar“ Sindri Sverrisson skrifar 15. febrúar 2026 09:01 Dalibor Dvorsky fagnaði vel eftir markið dýrmæta sem hann skoraði gegn Svíum. Getty/Bruce Bennett Það er ekki oft sem að íþróttafólk fagnar eftir að hafa tapað en það gerðu Slóvakar svo sannarlega eftir 5-3 tap gegn Svíum í íshokkí karla á Vetrarólympíuleikunum í gær.
Svíar unnu vissulega leikinn en það voru samt Slóvakar sem fögnuðu eftir að hafa tekist að skora lokamark leiksins þegar skammt var eftir. Það mark dugði nefnilega Slóvakíu til að vinna riðilinn og komast beint áfram í 8-liða úrslit keppninnar, á innbyrðis úrslitum. Eins og Íslendingar þekkja vel úr handboltanum þá gilda innbyrðis úrslit í íshokkíinu, þegar lið enda jöfn. Með sigri Svía í gær enduðu Svíþjóð, Slóvakía og Finnland öll jöfn, með sex stig hvert. Slóvakar enduðu hins vegar með +1 í innbyrðis markatölu, Finnar með 0 og Svíar með -1. „Þetta er æðislegt. Þetta er besta tap ævi minnar,“ sagði Dalibor Dvorsky, leikmaður Slóvakíu, sigurreifur eftir tapleik. Það var hann sem skoraði markið mikilvæga á lokamínútunni í gær. Talk about CLUTCH‼️ Dalibor Dvorsky scored with 39 seconds left on Saturday to win Group B for Team Slovakia. They now advance directly to the quarterfinals at the #MilanoCortina2026 #WinterOlympics. pic.twitter.com/lVeR54SiqE— St. Louis Blues (@StLouisBlues) February 14, 2026 Finnar komast mögulega einnig beint áfram í 8-liða úrslitin en Svíar enduðu í 3. sæti riðilsins og þurfa að fara í umspil á þriðjudaginn á meðan að Slóvakar hvílast. „Við spiluðum betur í dag. Auðvitað er óheppilegt að við skulum hafa komist þremur yfir en hleypt inn marki þegar það voru einhverjar 30 sekúndur eftir,“ sagði Adrian Kempe, leikmaður sænska liðsins. „Við þurfum að spila annan leik við eitthvað lið en það er líka bara tækifæri fyrir okkur til að tengja enn betur saman sem lið, vinna í smáatriðunum og fínpússa okkar leik sem lið. Þannig lít ég á þetta,“ sagði Kempe.
Íshokkí Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sjá meira