Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni Kristján Már Unnarsson skrifar 13. febrúar 2026 21:24 Loðnuskipin voru í dag á veiðum á Kötlugrunni. Mýrdalsjökull í baksýn. Björn Steinbekk Loðnuvertíðin er komin á fulla ferð og er loðnan núna á hraðri göngu vestur með suðurströndinni og að nálgast sitt verðmætasta form. Hún er gengin upp á landgrunnið og búin að þétta sig þar í torfur.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá myndir sem Björn Steinbekk tók í dag um borð í Berki NK, skipi Síldarvinnslunnar, undan Mýrdalssandi. Á Kötlugrunni voru síðdegis tólf loðnuskip að veiðum, ekki aðeins íslensk heldur einnig færeysk og grænlensk. Börkur NK í dag. Skipverjar eru að hringa nótina áður en loðnunni verður dælt um borð.Björn Steinbekk Flotinn fylgir loðnunni eftir og hefur undanfarna daga verið vel sýnilegur frá landi suðaustanlands. Um helgina má búast við að fremsti hluti loðnugöngunnar verði kominn á móts við Dyrhólaey og Vestmannaeyjar. Hrognafyllingin svokallaða þar er komin upp í sautján prósent sem þýðir að loðnan er orðin nægilega góð fyrir Japansmarkað. Þá er stutt í að hún verði enn verðmætari til hrognavinnslu. Hér er frétt Sýnar: Ef loðnan fylgir hefðbundnu göngumynstri má búast að meginhluti hennar fari vestur fyrir Reykjanes og verði kominn inn á Faxaflóa og jafnvel Breiðafjörð þegar hrygning hefst. Á sama tíma leita hafrannsóknaskipin Árni Friðriksson og Þórunn Þórðardóttir núna að meiri loðnu undan Vestfjörðum og Norðurlandi. Það er þó einkum áhöfn Árna sem annast loðnumælinguna meðan loðnan er hliðarverkefni hjá áhöfn Þórunnar. Loðnunótin dregin í hring um loðnutorfu. Mýrdalssandur í baksýn.Björn Steinbekk Helsta markmið rannsóknarleiðangursins er að kanna hvert loðnan, sem mældist fyrir norðan í síðasta mánuði, leitar til hrygningar. Hvort hún fylgi hefðbundnu göngumynstri austur fyrir land og með suðurströndinni, hvort einhver hluti hennar syndi vestur á bóginn og verði svokölluð vestanganga eða hvort jafnvel hluti hennar hrygni fyrir norðan. Siglingaferlar hafrannsóknaskipanna í kvöld. Árni Friðriksson var undan Vestfjörðum en Þórunn Þórðardóttir á siglingu djúpt undan Austfjörðum. Þá er ekki loku fyrir það skotið að meira finnist af loðnu sem gæti gefið tilefni til kvótaaukningar. Sú von þykir þó veik en búist er við niðurstöðum innan tíu daga. Þeim möguleika, hvort loðnukvótinn gæti orðið enn meiri, var velt upp í þesssari frétt Sýnar:
Loðnuveiðar Sjávarútvegur Matvælaframleiðsla Tengdar fréttir Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu Skipstjóri loðnuveiðiskips býst við að loðnuvertíðin verði komin á fullt í kringum næstu helgi. Hann segir sérstaka vertíðarstemningu fylgja loðnunni, - hún kveiki líf allsstaðar. 2. febrúar 2026 21:31 Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Eftir tvö vonbrigðaár í loðnunni bárust loks gleðitíðindi í dag þegar Hafrannsóknastofnun lagði til fimmföldun loðnukvótans. Það þýðir að loðnuvertíðin næstu tvo mánuði gæti skilað þjóðarbúinu 35 til 40 milljarða króna útflutningstekjum, að mati forstjóra Síldarvinnslunnar. 29. janúar 2026 21:42 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira
Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu Skipstjóri loðnuveiðiskips býst við að loðnuvertíðin verði komin á fullt í kringum næstu helgi. Hann segir sérstaka vertíðarstemningu fylgja loðnunni, - hún kveiki líf allsstaðar. 2. febrúar 2026 21:31
Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Eftir tvö vonbrigðaár í loðnunni bárust loks gleðitíðindi í dag þegar Hafrannsóknastofnun lagði til fimmföldun loðnukvótans. Það þýðir að loðnuvertíðin næstu tvo mánuði gæti skilað þjóðarbúinu 35 til 40 milljarða króna útflutningstekjum, að mati forstjóra Síldarvinnslunnar. 29. janúar 2026 21:42