Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 13. febrúar 2026 12:54 Kjartan er á leið til Íslands en á langt bataferli fram undan. Aðsend Kjartan Guðmundsson er nú á leið til Íslands í sjúkraflugi rúmum átta vikum eftir að hann lenti í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku. Móðir hans og dóttir létust í slysinu.
Agnar Jónsson, vinur Kjartans, segir í samtali við fréttastofu að hann sé kominn úr lífshættu og talið sé öruggt að flytja hann með sjúkraflugi. Hann er með meðvitund en er enn mjög slasaður og barkaþræddur svo Kjartan getur ekki talað. „Að hann sé á leiðinni heim eru jákvæð merki um að honum sé að batna,“ segir Agnar í samtali við fréttastofu. Þann 17. desember var Kjartan með móður sinni og dóttur á ferðalagi í Suður-Afríku til að heimsækja son hans sem er þar í fíknimeðferð. Þau ætluðu að dvelja í Suður-Afríku yfir jólin til að fagna hátíðinni með drengnum. Móðir og dóttir Kjartans létust báðar í slysinu. Hann lá lengi þungt haldinn og var haldið sofandi í öndunarvél. Bílslysið varð í grennd við borgina Mbombela í Suður-Afríku. Agnar segir að ferðalag Kjartans muni taka um 23 klukkustundir með fjórum stoppum. Síðan verður hann fluttur á Landspítalann þar sem læknateymi tekur við honum. Tryggingar greiða fyrir sjúkraflugið. Hrint var af stað söfnun fyrir Kjartan eftir slysið í desember. Sjá nánar: Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins
Suður-Afríka Íslendingar erlendis Mest lesið Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Fleiri fréttir Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Sjá meira