Þegar lausnin er alltaf stofnun Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar 13. febrúar 2026 11:01 Það er nokkuð í samfélagsumræðunni sem veldur mér sífellt meiri ónotum. Við tölum æ oftar um lausnir í velferðar- og heilbrigðiskerfinu eins og þær felist fyrst og fremst í því að finna stofnun fyrir fólk – fyrir þau sem eldast, fyrir þau sem fæðast og fyrir þau sem þurfa á stuðningi að halda. Getur ekki einhver annar stungið pela upp í Siggu litlu?Getur ekki einhver annar séð um afa svo honum leiðist ekki? Vegna þess að við þurfum að vinna svo mikið.Af því að við erum svo upptekin. Auðvitað er lífið margbreytilegt og aðstæður fólks ólíkar. Stundum er stofnanaþjónusta nauðsynleg, mikilvæg og lífsnauðsynleg. En þegar samfélagsumræðan fer að snúast um stofnanir sem sjálfgefna lausn – þá er ástæða til að staldra við. Samfélag sem gleymir tengslunum milli kynslóða Kannski er sorglegasti hluti þessarar umræðu sá að við gleymum stundum að tvö lífsskeið – bernska og öldrun – geta í raun styrkt hvort annað. Í samfélagi þar sem við tryggjum að fólk eldist við betri heilsu, með færni, virkni og sjálfstæði, og þar sem við losnum við rótgróna aldursfordóma um að eldra fólk sé „ófært“, gætu afi og Sigga litla mjög líklega átt dýrmætan tíma saman. Til þess þarf hins vegar samfélagslega stefnu sem styður fólk til að lifa virku lífi – ekki aðeins kerfi sem grípur inn þegar færni er farin að tapast. Álag á heilbrigðiskerfið er einkenni stærra vandamáls Staðan sem Félag bráðalækna hefur bent á í umræðu um álag á bráðamóttöku vekur djúpar áhyggjur. Þar er bent á alvarlegt álag og vonbrigði með stöðu mála – gagnrýni sem full ástæða er til að taka alvarlega. Heilbrigðiskerfið á ekki að starfa við slíkar aðstæður. En þessi staða er jafnframt áminning um stærra kerfislegt vandamál. Álag á spítala og bráðamóttökur verður ekki leyst til lengri tíma með því einu að byggja fleiri hjúkrunarheimili. Þau eru vissulega nauðsynleg og eiga að vera örugg og mannsæmandi úrræði fyrir þau sem á þeim þurfa að halda. Alþjóðleg stefnumótun í öldrunarfræðum bendir hins vegar skýrt á að þetta sé aðeins einn hluti lausnarinnar. Forvarnir eru lykillinn að sjálfbærri þjónustu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) leggur ríka áherslu á svokallaða heilbrigða öldrun, þar sem meginmarkmiðið er að styðja fólk til að viðhalda færni, sjálfstæði og þátttöku í samfélaginu eins lengi og kostur er. Þar er lögð áhersla á samþætta þjónustu, forvarnir og stuðning í nærumhverfi fólks. Rannsóknir sýna að slík nálgun bætir lífsgæði einstaklinga, dregur úr álagi á heilbrigðiskerfið og getur seinkað þörf fyrir stofnanaþjónustu. Hún er jafnframt hagkvæmari fyrir samfélagið til lengri tíma. Forvarnir snúast ekki eingöngu um líkamlega heilsu. Þær snúast einnig um andlega heilsu, félagsleg tengsl, tilgang og þátttöku í samfélaginu. Einmanaleiki, félagsleg einangrun og aldursfordómar hafa bein áhrif á heilsu og þjónustuþörf fólks. Þess vegna þarf markvissa uppbyggingu á störfum þar sem fagfólk á borð við tómstunda- og félagsmálafræðinga, félagsráðgjafa, félagsfræðinga, sálfræðinga, lýðheilsufræðinga og annað samfélagsmiðað fagfólk vinnur með fólki áður en vandinn verður að heilbrigðisvanda. Í störfum mínum hef ég lagt áherslu á að efla þátttöku, byggja upp tengsl milli kynslóða, vinna gegn einmanaleika og aldursfordómum og styðja fólk til að viðhalda virkni og sjálfstæði. Slík vinna er ekki aukaverkefni í velferðarkerfinu – hún er ein af lykilforsendum þess að kerfið ráði við framtíðina. Framtíðarspurning velferðarsamfélagsins Kannski þurfum við að færa umræðuna frá því hversu margar stofnanir við þurfum að byggja – yfir í það hvernig við byggjum samfélag þar sem færri þurfa á þeim að halda.Það væri faglegt.Það væri mannúðlegt.Það væri nútímalegt.Og líklega skynsamasta fjárfestingin fyrir samfélagið í heild sinni. Höfundur eru kynslóðablandari og tómstunda- og félagsmálafræðingur. Heimildir:WHO – Ageing and HealthWHO – Integrated continuum of long term care. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rannveig Ernudóttir Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Skoðun Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar