„Síminn stoppar ekki“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. febrúar 2026 14:11 Bjarki Heiðar Bjarnason lögmaður hefur ekki undan við að taka við símtölum frá fólki sem dvaldi á Bakkakoti og víðar. Vísir/Lýður Valberg Yfir þrjátíu manns sem dvöldu á vistheimilinu Bakkakoti hafa leitað til lögmanns, sem segir símann ekki stoppa. Þá hafi fleiri leitað til hans sem dvalið hafi á öðrum vistheimilum en Bakkakoti í barnæsku. „
Ég sit hérna á skrifstofunni, maður er hérna bara alla daga, langt fram á kvöld, síminn stoppar ekki,“ segir Bjarki Heiðar Bjarnason lögmaður mannanna sem lýst hafa grófu ofbeldi sem þeir urðu fyrir á vistheimilinu Bakkakoti á Rangárvöllum í æsku. Hann segir tölu þeirra nú sem hann hafi formlega tekið viðtal við sé nú orðin tólf en að yfir þrjátíu manns hafi heyrt í honum. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá en líkt og komið hefur fram kynnti forsætisráðherra í gær fjórþættar aðgerðir sem ríkisstjórnin hyggst grípa til vegna barna sem beitt voru ofbeldi í Bakkakoti. Þangað var fjöldi barna sendur í vistun á að minnsta kosti 27 ára tímabili frá 1975 til 2002. Þrír menn sem dvöldu á Bakkakoti í æsku funduðu með forsætisráðherra í vikunni og kröfðust rannsóknar og að bótaskylda yrði viðurkennd. „Við vissum að það væru margir sem hefðu dvalið á þessu heimili, þannig fjöldi þeirra sem leitað hafa til okkar hefur ekki komið á óvart,“ segir Bjarki. Hann segir hinsvegar að skjót viðbrögð stjórnvalda hafi komið á óvart. Ferlið við að leita réttar síns fyrir hvern og einn einstakling muni taka tíma en meðal þeirra aðgerða sem stjórnvöld kynntu í gær var að endurskoða sanngirnisbótakerfið. Lög um sanngirnisbætur voru felld úr gildi fyrir tveimur árum. Guðmundur Kristmundsson formaður Félags fósturforeldra sagði í kvöldfréttum Sýnar í gær að aðgerðir stjórnvalda væru gott fyrsta skref. Hann sagði fósturforeldra og starfsfólk barnaverndar hafa upplifað algjört afskiptaleysi stjórnvalda af eftirliti með fósturkerfinu svo árum skipti. Fjallað var um málið í kvöldfréttum Sýnar í gærkvöldi.
Ofbeldi gegn börnum Vistheimili Rangárþing ytra Réttindi barna Mál fósturbarna á Bakkakoti Tengdar fréttir Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð Málefni Bakkakots voru rædd á ríkisstjórnarfundi í morgun og minnisblöð lögð fram frá þremur ráðuneytum, forsætismálaráðuneytinu, dómsmálaráðuneytinu og mennta- og barnamálaráðuneytinu, lögð fram. 6. febrúar 2026 12:46 „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Þrír menn sem vistaðir voru á sveitabænum Bakkakoti í barnæsku og beittir grófu ofbeldi yfir langt skeið hittu forsætisráðherra í stjórnarráðinu í dag. Þeir vilja að fósturkerfið verði tekið til alvarlegrar skoðunar og hvetja fleiri til að stíga fram. 5. febrúar 2026 19:02 Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Forsætisráðherra kynnti í dag fjórþættar aðgerðir sem ríkisstjórnin hyggst grípa til vegna barna sem beitt voru ofbeldi um árabil í Bakkakoti. Formaður félags fósturforeldra segir bæði fósturforeldra og starfsfólk barnaverndar hafa upplifað algjört afskiptaleysi stjórnvalda í málinu. 6. febrúar 2026 20:31 Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Sjá meira
Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð Málefni Bakkakots voru rædd á ríkisstjórnarfundi í morgun og minnisblöð lögð fram frá þremur ráðuneytum, forsætismálaráðuneytinu, dómsmálaráðuneytinu og mennta- og barnamálaráðuneytinu, lögð fram. 6. febrúar 2026 12:46
„Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Þrír menn sem vistaðir voru á sveitabænum Bakkakoti í barnæsku og beittir grófu ofbeldi yfir langt skeið hittu forsætisráðherra í stjórnarráðinu í dag. Þeir vilja að fósturkerfið verði tekið til alvarlegrar skoðunar og hvetja fleiri til að stíga fram. 5. febrúar 2026 19:02
Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Forsætisráðherra kynnti í dag fjórþættar aðgerðir sem ríkisstjórnin hyggst grípa til vegna barna sem beitt voru ofbeldi um árabil í Bakkakoti. Formaður félags fósturforeldra segir bæði fósturforeldra og starfsfólk barnaverndar hafa upplifað algjört afskiptaleysi stjórnvalda í málinu. 6. febrúar 2026 20:31