Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Samúel Karl Ólason skrifar 6. febrúar 2026 16:48 Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, er hér fyrir miðju. Hann leiddi sendinefnd Írana í viðræðum við Bandaríkjamenn í Óman í dag. AP/Utanríkisráðuneyti Íran Ráðamenn í Íran segjast ekki ætla að hætta auðgun úrans. Þetta kom fram í máli íranskra erindreka í viðræðum þeirra við bandaríska erindreka í Óman í dag en Íranar munu þó hafa sagst opnir fyrir einhvers konar málamiðlun til að koma í veg fyrir mögulegar loftárásir Bandaríkjamanna.
Bandaríkjamenn hafa farið fram á að Íranar hætti auðgun úrans eða að hún fari fram í öðru ríki, svo Íranar geti ekki komið upp kjarnorkuvopnum. Ríkismiðlar Íran segja Abbas Araghchi, utanríkisráðherra, hafa alfarið hafnað því. Einnig hafa Bandaríkjamenn krafist þess að Íranar dragi úr eldflaugaáætlun ríkisins og hætti stuðningi við vígahópa í Mið-Austurlöndum. Samkvæmt Wall Street Journal fóru viðræðurnar þannig fram að erindrekar Bandaríkjanna og Íran töluðu ekki beint saman heldur gengu samningamenn frá Óman á milli sendinefndanna. Bandaríska sendinefndin var skipuð þeim Steve Witkoff, vini og sérstökum erindreka Trumps, Jared Kushner, tengdasyni forsetans, og Brad Cooper, sem er aðmíráll og yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjamenn hafa komið fyrir miklum herafla í Mið-Austurlöndum á undanförnum vikum og hafa gefið til kynna að loftárásir gegn klerkastjórninni séu mögulegar. Sjá einnig: Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Þetta var í fyrsta sinn sem Bandaríkjamenn og Íranar ræða saman frá því í júní, þegar Íranar og Ísraelar háðu tólf daga stríðið svokallaða. Viðræðurnar í dag virðast hafa skilað litlum árangri en til stendur að halda frekari viðræður milli ríkjanna. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna opinberaði undir kvöld frekari viðskiptaþvinganir gegn Íran, sem ætlað er að draga úr tekjum ríkisins. Aðgerðir þessar beinast að fjórtán skipum úr svokölluðum „skuggaflota“ og mönnum og fyrirtækjum sem hafa komið að því að selja olíu og gas frá Íran. https://www.state.gov/releases/office-of-the-spokesperson/2026/02/sanctions-to-combat-illicit-traders-of-iranian-oil-and-the-shadow-fleet/ Staða Írana þykir ekki góð en Bandaríkjamenn og Ísraelar eru taldir hafa unnið töluverðar skemmdir á getu þeirra til að auðga úran í árásum í sumar. Hagkerfi Íran er líka í mjög slæmu ásigkomulagi.
Íran Bandaríkin Hernaður Donald Trump Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira