Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Árni Sæberg skrifar 6. febrúar 2026 10:57 Maðurinn var um fertugt þegar hann sendi ógrynni kynferðislegra skilaboða til átta stúlkna. Matt Cardy/Gett Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar, sem er að mestu skilorðsbundin, fyrir að áreita átta stúlkur á aldrinum ellefu til þrettán ára kynferðislega á samfélagsmiðlinum Snapchat. Í samtölum sínum við stúlkurnar talaði hann mikið um útlit þeirra, bauð þeim í einhverjum tilfellum áfengi, sígarettur, rafrettuvökva og kynlífstæki og sagðist ekki vera barnaperri, þar sem slíkir löðuðust aðeins að börnum yngri en ellefu ára. Hann neitaði sök og bar meðal annars fyrir sig að hann hefði verið að grínast í stúlkunum.
Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjaness, sem kveðinn var upp í gær. Þar segir að maðurinn hafi verið ákærður í ellefu ákæruliðum fyrir nettælingu, kynferðislega áreitni gegn átta stúlkum og brot gegn barnaverndarlögum gagnavart þremur þeirra, með því að bjóða þeim áfengi, sígarettur, rafrettuvökva eða kynlífstæki. Tæplega fertugur en gerði lítið úr aldursmun Maðurinn var ákærður fyrir ógrynni skilaboða sem hann sendi stúlkunum á árunum 2021 og 2022, þegar hann var rétt tæplega fertugur. Hér að neðan má sjá hluta skilaboðanna: „Vil samt hitta þig þótt við ríðum ekki“ „Ég á sígó sko ef þið eruð desperate“ „Mér finnst þú svo flott og veit þetta með aldurinn en þú átt þá bara elsta kærastann af þínum vinkonum“ „Ok hitta mig og leyfa mér að prófa og sjá hvort ég geti látið þig fá?“ „Ég hef kannski stundum perrast svoldið I þér en mig langar svo að þú elskir mig til baka og við kynnumst skilurðu, til hamingju með systur þína og ég er alls ekki barnaperri“ „Myndirðu gera eitthvað í kynlífi með annarri gellu?“ „Af hverju heldurðu að ég sé með lítið typpi?“ „En ok 12 í bænum og förum svo í Losta og kaupum þetta‘‘ „Ég laðast ekki að börnum, barnaperri er hrifinn af 0-11 ára“ „En langar þér ekki að gera eitthvað næstu helgi? Get alveg farið í vape búðina fyrir þig ef þú vilt“ „Jebb veit ég er ekkert unglamb en myndi vera rosa Nice við þig“ „Meina mér er slétt sama um aldursmun, veit það er soldið fordæmt en sé ekkert slæmt við það“ „Hvað meinarðu að þú sért ekki falleg þarna á tt.....þeim einu sem finnst þú ekki eru þá þú sjálf, hommar, ofundsjukar stelpur og geðsjúklingar“ Hafi hvatt stúlkurnar og valdelft Í dóminum segir að maðurinn hafi neitað sök í öllum ákæruliðum og krafist sýknu en til vara væguustu refsingar sem lög leyfa. Hann hafi byggt sýknukröfu sína aðallega á því að samskipti hans við brotaþola hefði ekki verið kynferðisleg enda væri í engum tilfellum um kynferðismök af neinu tagi að ræða. Hann hefði oftar en ekki verið að hvetja stúlkurnar og valdefla þær enda hefðu þær sumar verið með lágt sjálfsmat. Hvatningin hefði meðal annars falist í því að segja að þær væru fallegar en alla vega sumar þeirra hafi verið á annarri skoðun. „Það að ákærði hafi ekki brotið gegn stúlkunum sjáist best á því að hann hafi hitt þær allar nema tvær og þá hafi aldrei gerst neitt refsivert á milli þeirra. Af hálfu ákærða hafi ummælin, sem ákært er vegna, verið grín og kaldhæðni og þau hafi oftar en ekki verið að frumkvæði brotaþola sjálfra.“ Sumar stúlkurnar hefðu viljað fá hann til að kaupa „veip“ fyrir sig og hefðu samskiptin að hluta til aðeins snúist um það. Hann væri hins vegar ekki stoltur af öllum ummælunum þegar þau séu skoðuð í dag. Þá hefði hann gefið tveimur brotaþolum mjög lítið áfengi en ekki hvatt þær til áfengisneyslu og þá hefði hann keypt veip fyrir suma brotaþolana. Þetta hefði hins vegar verið í þeim mæli að það gæti ekki verið refsivert. Mikill dráttur á málinu Niðurstaða héraðsdóms var að sakfella manninn fyrir að senda átta ungum stúlkum mikinn fjölda af óviðeigandi kynferðislegum skilaboðum, áreita þær með þeim hætti og særa blygðunarsemi þeirra. Í kafla dómsins um niðurstöðu refsingar segir að maðurinn hafi ekki áður sætt refsingu svo kunnugt sé og hann eigi sér ekki aðrar málsbætur í málinu. Brot hans hafi beinst að ungum stúlkum, hann hafi þannig haft yfirburðastöðu í aldri og þroska í samskiptum við stúlkurnar og nýtt sér þessa yfirburðastöðu sína. Þá hafi hann látið sér í léttu rúmi liggja hverjar afleiðingar af brotum hans kynnu að verða á andlega líðan stúlknanna. Um sé að ræða nokkrar stúlkur, margítrekuð skilaboð af hálfu mannsins gagnvart sumum þeirra og því hafi brotavilji hans verið einbeittur. Litið yrði til þessa við ákvörðun refsingar, sem þætti hæfilega ákveðin fimmtán mánaða fangelsisvist. Aftur á móti sé langt um liðið frá því að hann framdi brot sín og svo virðist sem rannsókn málsins hafi lokið um mitt ár 2023 en ákæra hafi ekki verið gefin út fyrr en í september 2025. Manninum verði á engan hátt kennt um þann mikla drátt sem varð á rekstri málsins hjá lögreglu og ákæruvaldi. Með vísan til þessa þyki rétt að fresta fullnustu á tólf mánuðum af refsingunni og sá hluti hennar falli niður að liðnum þremur árum frá birtingu dóms, haldi hann almennt skilorð. Kostar manninn tíu milljónir Þá var maðurinn dæmdur til að greiða sex stúlknanna miskabætur á bilinu 400 þúsund til 700 þúsund krónur, alls þrjár milljónir króna. Honum var einnig gert að greiða allan sakarkostnað málsins, alls rétt rúmlega sjö milljónir króna.
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Samfélagsmiðlar Mest lesið Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Innlent Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel Innlent Nágranninn kom út með hnífa í buxnastrengnum Innlent Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Innlent „Þetta verða mjög spennandi kosningar“ Innlent Heiða Guðný á Ljótarstöðum fékk óvænt kið Innlent „Ég er ekki að útiloka neitt, það er allt uppi á borðinu“ Innlent Sakfelling hjúkrunarfræðingsins sé sorgleg Innlent Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar Innlent Fleiri fréttir Nágranninn kom út með hnífa í buxnastrengnum Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel „Þetta verða mjög spennandi kosningar“ „Ég er ekki að útiloka neitt, það er allt uppi á borðinu“ „Nú verður fjör” hjá Sjálfstæðismönnum sem kynna lista í Mosó Heiða Guðný á Ljótarstöðum fékk óvænt kið Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Vendingar í borginni, vandræði vegna verktaka og Pepsi-sátt Framsókn sviptir hulunni af framboðslista í Mosó Rósin áfram í hnappagati Samfylkingarinnar Sakfelling hjúkrunarfræðingsins sé sorgleg Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar „Heiða hætt? Nei, bara veik heima“ Reykjadalur fær tugi milljóna eftir allt saman en aðrir minna Samfylking stærst en Sjálfstæðisflokkur skammt undan Landspítali fær 25 milljónir vegna stuðnings við Bakkakotsbörn Páll Winkel varð fyrir valinu Fyrir Heimaey lætur gott heita í Eyjum Síðustu strandaglóparnir komust til Keflavíkur í nótt Borgarfulltrúi sem hlaut ekki náð fagnar endurnýjun „Þetta kom okkur algjörlega í opna skjöldu“ Reykjavíkurborg játar ranga upplýsingagjöf en umboðsmaður segir spurningum enn ósvarað Deilt um framkvæmdir í Ölduselsskóla og flug í samt lag á ný Fái að hitta lækni fyrr með nýju skipulagi á bráðamóttökunni Íris kveður stjórnmálin í Eyjum Bein útsending: Heilsan okkar – Fíknivandi ungmenna Kveður Þorgerði og snýr sér að Guði Segja verktakann hafa fallið á prófinu Slitin drifkeðja bifhjóls olli banaslysi á Miklubraut Sjá meira