Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2026 06:30 Savannah Guthrie og tveir aðrir fjölskyldumeðlimir biðla hér til mannræningjanna. @savannahguthrie Bandaríska sjónvarpsstjarnan Savannah Guthrie ætlaði að vera á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu og lýsa setningarhátíð Ólympíuleikanna í kvöld. Ekkert verður af því.
Hin 54 ára gamla Guthrie er þekktur fréttaþulur hjá NBC, sem á útsendingarréttinn að Ólympíuleikunum í Bandaríkjunum. Stöðin hefur greint frá því að Guthrie muni ekki stjórna útsendingum frá opnunarhátíðinni, sem er jafnan sá viðburður Ólympíuleikanna sem hefur mesta áhorfið. Móður hennar hefur að sögn lögreglu líklega verið rænt. Lögreglan í Pima-sýslu í Arizona heldur áfram leit að 84 ára gamalli móður hennar, Nancy Guthrie. No suspects identified in Nancy Guthrie's disappearance as sheriff says authorities believe she is "still out there." https://t.co/rSHGb4bWZY pic.twitter.com/3CVgmC6KEF— CNN (@CNN) February 5, 2026 Donald J. Trump forseti er meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið og biður hann lögregluna um að tryggja að móðir Guthrie komist heil heim. Tilbúin að ræða við mannræningjana Í myndbandsskilaboðum segir Savannah Guthrie að hún og restin af fjölskyldunni séu tilbúin að ræða við mannræningjana, ef það er það sem málið snýst um. Í tilfinningaþrungnu myndbandi talar Savannah beint til móður sinnar og segir að „allir séu að leita að þér“. Hún biður einnig um sönnun þess að móðir hennar sé á lífi. Guthrie staðfestir einnig að hún hafi heyrt um mögulega lausnargjaldskröfu. Þetta hefur einnig verið fjallað um í sumum fjölmiðlum og lögreglan staðfestir að hún hafi fundið miða sem á að vera krafa – en að hún sé enn að rannsaka hvort hann sé ósvikinn. Savannah Guthrie er mjög þekkt sjónvarpskona í Bandaríkjunum.Getty/NDZ/Star Max „Savannah verður ekki með okkur á Ólympíuleikunum, þar sem hún einbeitir sér að því að vera með fjölskyldu sinni á þessum erfiðu tímum,“ segir talsmaður NBC við USA Today. „Hugur okkar er hjá henni og allri Guthrie-fjölskyldunni á meðan leit að móður þeirra heldur áfram.“ Rannsakað sem glæpsamlegt athæfi Chris Nanos, sýslumaður í Pima-sýslu, hefur sagt að Nancy Guthrie hafi verið „tekin“ í Tucson, Arizona, sunnudaginn 1. febrúar, og að heimili hennar sé litið á sem vettvang glæps. Það er rannsakað sem glæpsamlegt athæfi. „Við teljum að hún hafi verið tekin gegn vilja sínum og þar stöndum við núna,“ sagði Nanos á blaðamannafundi. „Hún er mjög hreyfihömluð; við vitum að hún hefur ekki bara gengið þaðan út af sjálfsdáðum. Við vitum ekki hvar hún er.“ View this post on Instagram A post shared by Savannah Guthrie (@savannahguthrie)
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Körfubolti Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Enski boltinn Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Fleiri fréttir Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Óttast slitið krossband og gæti verið lengi frá Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Dagskráin: Meistaradeildin og Körfuboltakvöld kvenna „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Sjá meira