Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Eiður Þór Árnason skrifar 5. febrúar 2026 20:04 Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi. Vísir/vilhelm Félagið Festi, sem rekur Krónuna, Elko, Lyfju og N1, hagnaðist um 6,2 milljarða króna árið 2025. Það er rúmlega helmingsaukning frá fyrra ári. Framlegð, sem samsvarar mismuni á tekjum og helstu kostnaðarliðum við sölu vöru og þjónustu, jókst um 19 prósent milli ára og nam 36,7 milljörðum.
Vöru- og þjónustusala jókst um 12,3 prósent milli 2024 og 2025 en hagnaðaraukning nemur 35,3 prósentum milli ára án áhrifa einskiptiskostnaðar. Framlegðarstig var 25,4 prósent þvert á félagið í lok síðasta árs og 23,5 prósent af dagvörusölu. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu félagsins en stjórnendur gera ráð fyrir því að skila enn betri rekstrarniðurstöðu á yfirstandandi ári. Til stendur að N1 eignist 70 prósenta hlut í veitingakeðjunni Local og þá hefur Lyfja fest kaup á vörumerki Jurtaapóteksins. Á sama tíma hafi síðustu verslun Heilsuhússins verið lokað í janúar í hagræðingarskyni. „Öll rekstrarfélögin okkar eru að bæta sinn rekstur með aukningu í sölu á vörum og þjónustu ásamt því að ná fram hagræðingu á rekstrarkostnaði á sama tíma,“ er haft eftir Ástu S. Fjeldsted forstjóra í tilkynningu. Ársfjórðungsniðurstöður allra rekstrarfélaga hafi farið fram úr áætlunum. Nam eiginfjárhlutfall félagsins 41,2 prósentum í árslok. Notfært sér stærð sína í samskiptum við birgja „Aukin umsvif, bætt stærðarhagkvæmni og aukin samlegð eru lykilþættir í bættri afkomu. Árangur hefur náðst með að halda kostnaði niðri og nota stærð samstæðunnar í samskiptum við birgja og erlenda samstarfsaðila með það að markmiði að bjóða viðskiptavinum sem hagstæðasta verð á hverjum tíma. Sömuleiðis hefur markvert átak í minnkun rýrnunar í verslunum skilað sér í hækkun framlegðarstigs og bættrar rekstrarafkomu þvert á samstæðuna milli ára,“ er haft eftir Ástu. Fram kemur í tilkynningu að afgreiðslum í Krónunni hafi fjölgað um 7,5 prósent milli ára og velta netverslunar Krónunnar aukist um 50 prósent. Þá hafi aðsókn í vörur hjá Elko aldrei verið meiri. „Horfur fyrir árið 2026 eru ágætar þrátt fyrir óvissu í þróun efnahagsmála með hækkandi verðbólguspám fyrir fyrri helming ársins. Festi gerir ráð fyrir svipuðum fjölda ferðamanna og á síðasta ári og er búist við því að allir starfsþættir bæti afkomu sína milli ára,“ segir í tilkynningu. Festi er skráð í Kauphöll Íslands en margir stærstu eigendur félagsins eru íslenskir lífeyrissjóðir.
Festi Kauphöllin Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Sjá meira