Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Samúel Karl Ólason skrifar 5. febrúar 2026 11:21 Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, barðist fyrir því að breyta kjördæmum í ríkinu og gera þannig Repúblikönum erfiðara að ná kjöri á þing í ríkinu. Var það eftir að Repúblikanar byrjuðu að grípa til sambærilegra aðgerða víða um Bandaríkin. AP/Ethan Swope Dómarar Hæstaréttar Bandaríkjanna neituðu í gær að taka fyrir mál sem Repúblikanar og ríkisstjórn Donalds Trump hafa höfðað gegn Kaliforníu. Málið snýr að breytingum sem gerðar hafa verið á kjördæmum þar fyrir þingkosningarnar í nóvember en Repúblikanar vildu fá breytingarnar felldar niður, þar sem þær munu líklega koma niður á þingmannafjölda þeirra.
Hæstiréttur hafði áður leyft Repúblikönum í Texas að gera sambærilegar breytingar, þótt lægra dómstig hafi komist að þeirri niðurstöðu að kjördæmabreytingarnar þar hefðu óeðlilega mikil áhrif á kjósendur sem eru ekki hvítir. Í lögsókn Repúblikana gegn Kaliforníu var því sama haldið fram en því hafnaði lægra dómstig. Með breytingunum í Kaliforníu búast Demókratar við að ná fimm þingsætum úr höndum Repúblikana og var gripið til þessa ráðs eftir að Donald Trump kallaði eftir því að Repúblikanar gerðu þessar breytingar í ríkjum þar sem þeir stjórna til að bæta stöðu þeirra fyrir þingkosningarnar í nóvember. Við það hófst það sem kalla má kjördæmastríð þar sem Demókratar hétu því að svara breytingum Repúblikana á kjördæmum með eigin breytingum. Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur gefið grænt ljós á breytingarnar í Kaliforníu en áður gaf hann grænt ljós á kjördæmabreytingar í Texas.AP/Mariam Zuhaib Breytingar væntanlegar í fleiri ríkjum Við venjulegar kringumstæður er kjördæmum breytt á um tíu ára fresti, í kjölfar reglulegs manntals í Bandaríkjunum. Þá er 435 þingsætum í fulltrúadeildinni deilt á ríki í hlutfalli við íbúafjölda. Washington Post segir að umfang breytinganna sem verið er að gera núna, á milli manntala, hafi ekki sést í Bandaríkjunum síðan á nítjándu öld. Það að breyta kjördæmum með þessum hætti, í þágu annars flokksins í Bandaríkjunum, kallast „Gerrymandering“ á ensku. Í einföldu máli sagt er þetta gert með því að þjappa mörgum kjósendum eins flokks í fá kjördæmi og þynna út atkvæði annarra. Sjá einnig: Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Í grein AP fréttaveitunnar kemur fram að Repúblikanar hafi þegar breytt kjördæmum í fjórum ríkjum. Það eru Texas, Missouri, Ohio og Norður-Karólína. Það var einnig reynt í Indiana en sú breyting var felld niður af dómstólum. Repúblikanar í Flórída, Louisiana, Kansas og Nebraska eru að íhuga að breyta kjördæmum ríkjanna fyrir kosningarnar. Demókratar hafa gert sambærilegar breytingar í Kaliforníu og í Utah. Þá eru breytingar til skoðunar í Washington-ríki, Colorado, Illinois, New York, Virginíu og Maryland. Breytingarnar í Kaliforníu voru gerðar með samþykki kjósenda, þar sem atkvæðagreiðsla var haldin um þær. Mikill meirihluti kjósenda í Kaliforníu var hlynntur breytingunum. Heilt yfir hafa Demókratar þó minni tækifæri en Repúblikanar til að breyta kjördæmum fyrir kosningarnar. Er það bæði vegna þess að þeir stjórna færri ríkjum en Repúblikanar og þar sem í mörgum þeim ríkjum sem þeir stjórna eru sérstakar reglur og lög um það hvernig kjördæmi eru teiknuð upp af óháðum nefndum eða með öðrum leiðum. Stressaðir Repúblikanar Trump og Repúblikanar hafa áhyggjur af þingkosningunum sem fara fram í nóvember. Þessar kosningar fara iðulega þannig að flokkurinn sem forsetinn tilheyrir kemur illa út og eins og staðan er í dag líta kosningarnar illa út fyrir Repúblikana. Síðustu mánuði hefur Demókrötum vegnað vel í sérstökum kosningum sem haldnar hafa verið víða um Bandaríkin til að fylla upp í laus þingsæti og önnur embætti. Um helgina sigraði Demókrati til að mynda kosningar um sæti í öldungadeild ríkisþings Texas. Kosningarnar voru í kjördæmi þar sem Trump sigraði Kamölu Harris með sautján prósentustiga mun í forsetakosningunum 2024. Taylor Rehmet, demókrati, sigraði þó kosningar um helgina með fjórtán prósentustiga mun, sem markar rúmlega þrjátíu prósenta sveiflu. Trump sagði á dögunum að ef Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeildinni muni þeir líklega gera sitt besta til að ákæra hann aftur fyrir embættisbrot. Hann kallaði nýverið eftir því að Repúblikanar tækju stjórn á framkvæmd kosninga víðsvegar um Bandaríkin, eða „þjóðnýttu“ kosningarnar, eins og hann orðaði það. Þetta lagði hann til á grunni lyga um að umfangsmikið kosningasvindl hefði kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira