Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Kjartan Kjartansson skrifar 5. febrúar 2026 10:53 Fulltrúi bandaríska utanríkisráðuneytisins vildi ekki hitta fulltrúa miðvinstriflokka í þýskri þingmannanefnd á dögunum. Hann vildi aðeins hitta þingmenn úr mið- og fjarhægriflokkum. Vísir/EPA Heimsókn þingmannanefndar frá Þýskalandi til Washington-borgar komst í uppnám þegar embættismaður bandaríska utanríkisráðuneytisins vildi útiloka þingmenn miðvinstriflokka af fundi með hópnum. Ekkert varð af fundinum.
Í hópnum voru fulltrúar þýsku ríkisstjórnarflokkanna tveggja, miðhægriflokksins Kristilegra demókrata og miðvinstriflokksins Sósíademókrata, auk þingmanna Græningja og fjarhægriflokksins Valkosts fyrir Þýskaland. Megintilgangur heimsóknarinnar var að ræða málefni Kína Til stóð að sendinefndin fundaði með Brendan Hanrahan, hátt settum embættismanni í Evrópu- og Evrasíudeild bandaríska utanríkisráðuneytisins. Þegar til kastanna kom vildi ráðuneytið hins vegar aðeins bjóða þingmönnum hægriflokkanna tveggja, ekki miðvinstriflokkanna. Norbert Röttgen, þingmaður Kristilegra demókrata, hafnaði því að sitja fundinn án félaga hans úr ríkisstjórninni, Í kjölfarið var fundinum með Hanrahan aflýst, að sögn dagblaðsins Politico. Ekki liggur fyrir hver aflýsti fundinum á endanum. Þýska utanríkisráðuneytið vildi ekki gefa skýringar á hvers vegna honum var aflýst og vísaði aðeins til dagskrárbreytinga. Bandaríska utanríkisráðuneytið hafnaði því að hygldi fulltrúum ákveðinna flokka umfram aðra. Það tjáði sig ekki um fundi af þessu tagi. Fjarhægriþingmaður fékk einkafund í Pentagon Politico setur uppákomuna í Washington í samhengi við harðnandi tón Bandaríkjastjórnar í garð hefðbundinna bandalagsríkja hennar í Evrópu eftir að Donald Trump tók aftur við sem forseti í fyrra. Í þjóðaröryggisáætlun sem stjórn Trump kynnti í vetur var skotið fast á stjórnvöld í Evrópu fyrir að standa í vegi fjarhægriflokka í álfunni, sérstaklega í innflytjendamálum. Fulltrúar Bandaríkjastjórnar hafa einnig ræktað tengslin við ýmsa fjarhægriflokka í Evrópu, þar á meðal Valkost fyrir Þýskaland, Frelsisflokk Geerts Wilders í Hollandi, og Þjóðfylkingar Marine Le Pen í Frakklandi. Í því samhengi vekur athygli að Peter Felser, fulltrúi Valkosts fyrir Þýskaland í þingmannanefndinni sem heimsótti Washington, óskaði eftir að fékk einkafund með embættismönnum í varnarmálaráðuneytinu Pentagon um þýsk varnarmál. Felser segir sjálfur að fundurinn jafngilti stuðningi Bandaríkjastjórnar við flokk hans. Rótföst og óbifanleg heimsmynd Hinir þingmennirnir tjáðu sig ekki beint um fundinn sem var aflýst. Siemtje Möller, þingmaður Sósíaldemókrata sem Bandaríkjamennirnir vildu ekki hitta, segir uppákomuna sýna að Bandaríkjastjórn sé sundurlaus. Nefndin hefðu engu að síður fundað með öðrum embættsimönnum og þingmönnum Repúblikanaflokksins í heimsókninni. Röttgen lýsti yfir furðu á heimssýn bandarískra stjórnarliða sem væri rótföst og óbifanleg, þar á meðal erindreka, stjórnmálamanna og málafylgjumanna. Hann hefði aldrei upplifað slíkan einstrengingshátt í fyrri heimsóknum sínum vestur um haf.
Bandaríkin Donald Trump Þýskaland Öryggis- og varnarmál Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Sjá meira