Innlent

Nafn­laus á­bending upp­haf skoðunar á starfs­mönnum Bifrastar

Kjartan Kjartansson skrifar
Margrét Jónsdóttir Njarðvík er rektor Háskólans á Bifröst.
Margrét Jónsdóttir Njarðvík er rektor Háskólans á Bifröst. Vísir/Sara

Rektor Háskólans á Bifröst segist hafa fengið ábendingu um möguleg brot starfsmanna á höfundarrétti frá aðila sem nýtur nafnleyndar. Stjórn skólans ætlar að skipa óháðan utanaðkomandi aðila til þess að leiða sáttaferli innan skólans.

Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor á Bifröst, greinir frá þessu í tölvupósti sem hún sendi starfsmönnum og kennurum skólans í dag. Það kemur í kjölfar þess að Félag akademískra starfsmanna skólans lýstu yfir vantrausti á rektorinn og aðra stjórnendur vegna framgöngu þeirra gegn þremur starfsmönnum í tengslum við ábendingu til siðanefndar innan skólans.

„Hér er um að ræða fyrsta mál sinnar tegundar, þar sem rektor fær ábendingu frá aðila sem nýtur nafnleyndar og viðkomandi felur rektor að taka málið áfram,“ skrifar Margrét í póstinum en hún hefur ekki veitt fjölmiðum viðtöl um deilurnar innan skólans til þessa.

Hún hafi í kjölfarið fundað með deildarforseta viðskiptadeildar og rannsóknarstjóra og falið þeim að kanna hvort ábendingin væri tilhæfulaus. Stjórnendunir hafi unnið sína vinnu að hennar beiðni og af heilindum.

„Fyrir það hafa þau legið undir ámæli opinberlega. Þau hafa virt þagnarskyldu sína og hafa því ekki haft tök á að verja faglegan heiður sinn. Ég hef tekið mjög nærri mér gagnrýnina í þeirra garð fyrir það að sinna starfi sínu,“ segir í bréfi rektorsins.

Starfsmannafélagið hefur sakað stjórnendurna um að hafa byggt ályktanir sínar um hvort að þrír starfsmenn skólans hafi réttilega verið skráðir meðhöfundar að greinum á úttekt gervigreindarforrits.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×