Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Smári Jökull Jónsson skrifar 4. febrúar 2026 12:22 Kamilla Jósefsdóttir er yfirlæknir á sóttvarnarsviði Vísir/Arnar Yfirlæknir á sóttvarnasviði Landlæknis segir flesta þá sem smitist af berklum aldrei veikjast af berklasjúkdómi. Áhyggjur séu fyrir hendi að fleiri gætu veikst í viðkvæmum hópum sem séu líklegri til að veikjast en aðrir. Enginn hefur látist á Landspítala á þessu eða síðasta ári af völdum berkla.
Í gær var greint frá að minnsta kosti átta starfsmenn á bráðamóttökunni í Fossvogi í Reykjavík hafi verið útsettir fyrir berklum án þess þó að vera veikir eða smitandi. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítala hefur enginn látist af völdum berkla á þessu ári eða því síðasta en greint var frá því í morgun að berklasmitaður maður hafi látist á Landspítala í janúar eftir að meðferð hafi ekki borið árangur. Kamilla Jósefsdóttir, yfirlæknir á sóttvarnasviði Landlæknis, segir minnihluta veikjast af þeim sem smitast. „Útsetning er yfirleitt bara notuð þegar vitað er um smitandi einstakling sem hefur verið í sama rými og starfsmennirnir þegar berklar eru annars vegar. Því berklar eru loftborið smit, þannig að það er nóg að vera í sama loftrými og einhver sem er að hósta berklabakteríu út í loftið til þess að vera útsettur,“ sagði Kamilla í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Flestir sem smitist veikist aldrei en þeir sem veikist geri það flestir einu til tveimur árum eftir smit. „En þar sem ónæmiskerfið ræður ekki við að algjörlega útrýma bakteríunni þar getur hún verið til staðar í langan tíma jafnvel. Þannig að sumir sem hafa orðið fyrir berklasmiti veikjast jafnvel áratugum seinna.“ Ekki hægt að staðhæfa hvenær smit átti sér stað Erfitt sé að segja til um nákvæmlega hvenær starfsmenn urðu útsettir fyrir berklum. „Það eru reglur á Landspítala um það hvenær er skimað hjá starfsmönnum og ég get ekki svarað nákvæmlega við hvaða aðstæður það er gert. Það er frekar líklegt að þessir starfsmenn hafi áður farið í berklapróf og eigi þá gamalt neikvætt berklapróf.“ „Ef það var fyrir fimm árum síðan þá er ekki hægt að staðhæfa hvort smit hafi átt sér stað á síðasta hálfa ári eða fyrir þremur árum. „Höfum áhyggjur af því að það geti fleiri veikst í þessum viðkvæma hópi“ Þeir sem séu smitandi fái leiðbeiningar um einangrun og meðferð en Kamilla segir meðferð við berklum ekki auðvelda. Síðasta sumar var greint frá berklasmitum á meðal heimilislausra og árið 2024 var sett á sérstakt teymi þegar berklar greindust í gistiskýlum í Reykjavík. Kamilla segir staðreyndina því miður þannig að þeir sem búi við slæmar aðstæður séu líklegri til að veikjast af berklum. „Við höfum áhyggjur af því að það geti fleiri veikst í þessum viðkvæma hópi og að það geti orðið tafir á því að meðferð hefjist. En þeir sem að þekkja þetta best eru þeir sem hafa sinnt þessum hópi á Landspítala.“ Eins og áður segir er meðferð við berklum ekki auðveld. „Það þarf mörg lyf af því að þessi baktería er bæði með innbyggt ónæmi gegn mörgum venjulegum sýklalyfjum sem við notum við öðrum lungnabólgum. Svo er hún frekar gjörn á að þróa með sér ónæmi ef ekki er vel staðið að meðferðinni,“ en hún segir að sem betur fer sé sjaldgæft að finna ónæma berkla hér á landi.
Heilbrigðismál Landspítalinn Embætti landlæknis Berklar Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fleiri fréttir Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Sjá meira