Gerum eitthvað gott Heiða Björg Hilmisdóttir, Alexandra Briem, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Helga Þórðardóttir og Líf Magneudóttir skrifa 3. febrúar 2026 13:00 Það er ekki margt sem næstum öll ættu að geta verið sammála um að sé gott að gera. En frítt í strætó fyrir börn á grunnskólaaldri er ein slík aðgerð. Í dag er til umræðu tillaga samstarfsflokkanna í borgarstjórn um það að við hættum að rukka grunnskólabörn í strætó. Þannig getum við dregið úr aðstöðumun barna og aukið á möguleika þeirra og frelsi til þess að ferðast um borgina vegna skóla, íþrótta, tómstunda eða bara til að vera með vinum sínum. Með þessu er líka hægt að draga úr skutli sem leggst á foreldra, vegna skóla, frístunda, íþrótta og annars, og vonandi dregur það aðeins úr umferðarþunga á mestu annatímum í leiðinni. Börn eru ekki með bílpróf og þau hafa ekki tekjur, svo þetta er líka leið til að auka á frelsi þeirra, á sama tíma og þau læra að nota strætó og eru þá líklegri til að líta á almenningssamgöngur sem vænlegan kost í framtíðinni. Við þetta bætist að það gæti einfaldað grunnskólunum töluvert að skipuleggja vettvangsferðir og mögulega væri hægt að draga úr einhverjum kostnaði vegna skipulagðra ferða á móti. Gerum það saman Best væri auðvitað ef sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu gætu gert þetta í sameiningu. Það væri einfaldast ef öll sveitarfélögin sem koma að Strætó BS. geta náð saman um það að hætta einfaldlega að rukka inn fyrir börn í grunnskóla, og skipta á milli sín kostnaðinum. Sú aðferð er auðveldust í framkvæmd, og þá nýtist þetta auðvitað öllum börnum á höfuðborgarsvæðinu. Ef það er ekki mögulegt, þá ætlum við samt að finna leið til þess að gera þetta í Reykjavík. Flýtum okkur hægt Frítt í strætó fyrir grunnskólabörn þarf samt auðvitað að útfæra, það þarf að fara í nákvæmara kostnaðarmat, eiga samtal við hin sveitarfélögin og Strætó BS, og vinna endanlega framkvæmanlega tillögu. Það þarf að skoða hver möguleg afleidd áhrif eru í annarri starfsemi, svo sem á skóla- og frístundasviði, og það þarf að ná utan um það hvernig það er framkvæmt ef það verður ekki úr að gera þetta saman á öllu höfuðborgarsvæðinu. Gerum það í snatri Þess vegna er það útfærslan að við felum borgarstjóra að vinna tillöguna frekar, og leggja hana svo fyrir borgarráð, þannig að hún geti komið til framkvæmdar eigi síðar en 1. maí næstkomandi. Það er tækifæri núna til þess að framkvæma þessa góðu og mikilvægu breytingu fyrir börnin í borginni. Höfundar eru oddvitar samstarfsflokkanna í borgarstjórnHeiða Björg HilmisdóttirAlexandra BriemSanna Magdalena MörtudóttirHelga ÞórðardóttirLíf Magneudóttir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar