„Eins og Gísli Þorgeir en getur líka skotið fyrir utan“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. janúar 2026 15:20 Jóhann Gunnar óttast að Mathias Gidsel muni reynast Íslandi mjög erfiður viðureignar í kvöld. vísir „Ef þú myndir hitta hann úti á götu myndirðu ekki halda að hann væri einhver frábær handboltamaður, þú myndir frekar skjóta á að hann væri bókasafnsvörður“ segir Jóhann Gunnar Einarsson um Mathias Gidsel, einn besta leikmann Danmerkur sem mætir Íslandi í undanúrslitum EM í handbolta í kvöld.
Jóhann segir Gidsel hreint ótrúlegan leikmann, en ólíkan þeim stjörnum sem hann ólst upp við að sjá. „Mín kynslóð elst upp við að bestu leikmennirnir séu menn eins og Nikola Karabatic eða Karol Bielecki, svona risa gæjar sem hamra á markið. Hann er með þannig líkamsbyggingu, að hann er með gorma í fótunum. Ótrúlega snöggur, notar gormana einhvern veginn til að svífa framhjá mönnum. Tímasetningar og stefnubreytingar eru bara upp á hundrað prósent.“ Gidsel er snöggur miðjumaður sem fer niður í hornið í vörn, alls ekki ólíkt einum besta leikmanni Íslands. „Ef maður ætti að líkja honum við einhvern þá er hann eins og Gísli Þorgeir en getur líka skotið fyrir utan. Það er fáránlegt hvað hann er fjölhæfur leikmaður.“ Sérfræðingar héldu áfram að mæra Gidsel og sögðu eiginlega allar sóknir Danmerkur, allavega allar mikilvægu sóknirnar, fara í gegnum hann. Ef Ísland ætlar að vinna leikinn í kvöld verður einhvern veginn að stöðva Gidsel, eða allavega hægja á honum, en hvernig verður farið að því? „Janus er á móti honum, með Elliða þarna við hliðina á sér. Þeir verða heldur betur að vera á tánum í kvöld“ sagði Jóhann. „Það er hvergi veikan blett að finna á honum, en við verðum bara að hlaupa með honum. Þegar þeir taka hraða miðju, það er eitt af þessum atriðum sem ég hugsa að Snorri leggi mikla áherslu á. Ef við ætlum að halda honum eitthvað aðeins niðri þá getum við allavega byrjað á þessu [að stöðva hraða miðju.] Það er einn af þessum þáttum, þannig að við getum allavega dregið úr Gidsel að einhverju leiti.“
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira