Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Árni Sæberg skrifar 30. janúar 2026 10:51 Maðurinn var með þrjá lítra af kókaínvökva í farteskinu við komuna til landsins. Vísir/Vilhelm Valentin Jemeljanov, Litái á fertugsaldri, hefur verið dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir að flytja inn þrjá lítra af kókaíni á vökvaformi. Úr vökvanum mætti framleiða 3,5 kíló af kókaíni með styrkleika upp á 53 prósent.
Í dómi Héraðsdóms Reykjaness, sem kveðinn var upp á þriðjudag, segir að maðurinn hafi tekið kókaínvökvann með sér um borð í flugvél á leið frá Riga í Lettlandi til Íslands, falinn í fjórum flöskum í farangri hans. Hann hafi játað brot sín skýlaust fyrir dómi og krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá segir að af fyrirliggjandi gögnum yrði ekki ráðið að maðurinn hafi verið eigandi nefndra fíkniefna eða tekið þátt í skipulagningu á kaupum og innflutningi þeirra til Íslands með öðrum hætti en þeim að samþykkja að flytja efnin til landsins gegn greiðslu. Litið hafi verið til þessa við ákvörðun refsingar. Refsing hans væri hæfilega ákveðin þriggja og hálfs árs óskilorðsbundin fangelsisvist. Þá greiði Valentin allan sakarkostnað, 1,5 milljónir króna.
Fíkniefnabrot Keflavíkurflugvöllur Litáen Lettland Dómsmál Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Sjá meira