Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis Samúel Karl Ólason skrifar 29. janúar 2026 18:29 Fjöldi fólks kom saman í Minneapolis í gær til að minnast Alex Pretti. AP/Adam Gray Alríkissaksóknarar í Minneapolis í Bandaríkjunum hafa hótað því að hætta í massavís. Er það vegna þess hvernig haldið hefur verið á spöðunum varðandi rannsóknir á dauða þeirra Renée Good og Alex Pretti, sem skotin voru til bana af útsendurum heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna.
Margir saksóknarar eru sagðir hafa sagt Daniel Rosen, ríkissaksóknara sem skipaður var af Donald Trump, á fundi í vikunni að þeir væru líklegir til að hætta og að minnsta kosti einn hefur þegar hætt, samkvæmt heimildum Washington Post. Good og Pretti voru skotin með rúmlega tveggja vikna millibili en þau atvik hafa leitt til mikillar reiði. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur staðið í vegi þess að löggæsluembætti og saksóknarar í Minnesota hafi getað rannsakað banaskotin, sem eru bæði mjög svo umdeild. Yfirvöld í Minnesota vita til að mynda ekki hvað mennirnir tveir sem skutu Pretti til bana heita en þeir voru fljótt fluttir úr ríkinu. Þó nokkrir alríkissaksóknarar hættu fyrr í mánuðinum, eftir að embættismenn úr ráðuneytinu sögðu þeim að skoða ekki banaskot Good, heldur reyna frekar að byggja mál gegn maka hennar. Eftir þær uppsagnir voru aðrir saksóknarar úr öðrum ríkjum sendir til Minnesota til að aðstoða saksóknarana sem eftir voru þar en gífurlega mikið álag hefur verið á þeim vegna aðgerða heimvarnaráðuneytisins og útsendara stofnana þess í ríkinu. Um sjötíu alríkissaksóknarar eiga að starfa fyrir ríkissaksóknarann en svo margir hafa hætt á undanförnum mánuðum að um helmingur starfanna eru ófyllt, samkvæmt frétt WP. Rannsaka kollega sína en fá ekki sönnunargögn Við hefðbundnar kringumstæður koma útsendarar Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) og saksóknarar að rannsókn á því þegar alríkisútsendarar skjóta borgara til bana. Það er þá rannsakað sem mögulegt brot á borgaralegum réttindum þess sem var skotinn. Eftir að Good var skotin hófst slík rannsókn innan FBI en blaðamenn vestanhafs segja að hún hafi verið stöðvuð fljótt. Þess í stað stóð til að reyna að ákæra maka hennar. Staðan virðist svipuð þegar kemur að banaskoti Pretti. Þar hafa útsendarar heimavarnaráðuneytisins fengið það hlutverk að rannsaka kollega sína. CNN sagði frá því í gær að þeir hefðu takmarkaðan aðgang að upplýsingum og sönnunargögnum sem búið væri að afla. Trump hefur þó talað fyrir því að hann vilji ítarlega rannsókn á dauða Pretti. „Ég vil sjá þessa rannsókn. Ég mun fylgjast með henni og vil að hún verði virðingarfull og heiðarleg. Ég verð að sjá hana sjálfur,“ sagði Trump í dag. Foreldrar Pretti hafa ráðið fyrrverandi alríkissaksóknara sem kom að því að lögsækja lögregluþjónana sem myrtu George Floyd um árið. Sá er mjög reynslumikill en AP hefur eftir talsmanni fjölskyldunnar að hann hafi boðist til að vinna launalaust fyrir þau.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Donald Trump Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Maður réðist að þingkonunni Ilhan Omar á íbúafundi í Minneapolis í gærkvöldi og sprautaði á hana óþekktu og illa lyktandi efni. Maðurinn var yfirbugaður af öryggisvörðum og Omar hélt áfram með ræðu sína. 28. janúar 2026 08:02 Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Innflytjenda- og tollaeftirlit Bandaríkjanna, eða ICE, hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarna daga. Það er sérstaklega vegna ástandsins í Minnesota, þar sem þúsundir útsendara ICE og annarra stofnana heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna hafa vakið mikla athygli að undanförnu og skotið tvo íbúa til bana. 28. janúar 2026 08:02 Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Svo virðist sem gríðarleg reiði og hörð gagnrýni vegna framgöngu innflytjendayfirvalda í Minneapolis sé farin að hafa áhrif á stjórnvöld vestanhafs en erlendir miðlar greina frá því að ákvörðun hafi verið tekin um að láta Greg Bovino, sem farið hefur fyrir aðgerðum í borginni, snúa aftur til fyrri starfa í Kaliforníu. 27. janúar 2026 06:48 Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er að senda Tom Homan, svokallaðan „landamærakeisara“ sinn, til Minnesota. Þar á hann að ræða við Tim Walz, ríkisstjóra, og aðra embættismenn um ástandið þar og aðgerðir alríkisútsendara. Gífurlega spenna er í ríkinu eftir að útsendarar þessir skutu aðra manneskju til bana um helgina. 26. janúar 2026 18:29 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Sjá meira
Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Maður réðist að þingkonunni Ilhan Omar á íbúafundi í Minneapolis í gærkvöldi og sprautaði á hana óþekktu og illa lyktandi efni. Maðurinn var yfirbugaður af öryggisvörðum og Omar hélt áfram með ræðu sína. 28. janúar 2026 08:02
Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Innflytjenda- og tollaeftirlit Bandaríkjanna, eða ICE, hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarna daga. Það er sérstaklega vegna ástandsins í Minnesota, þar sem þúsundir útsendara ICE og annarra stofnana heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna hafa vakið mikla athygli að undanförnu og skotið tvo íbúa til bana. 28. janúar 2026 08:02
Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Svo virðist sem gríðarleg reiði og hörð gagnrýni vegna framgöngu innflytjendayfirvalda í Minneapolis sé farin að hafa áhrif á stjórnvöld vestanhafs en erlendir miðlar greina frá því að ákvörðun hafi verið tekin um að láta Greg Bovino, sem farið hefur fyrir aðgerðum í borginni, snúa aftur til fyrri starfa í Kaliforníu. 27. janúar 2026 06:48
Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er að senda Tom Homan, svokallaðan „landamærakeisara“ sinn, til Minnesota. Þar á hann að ræða við Tim Walz, ríkisstjóra, og aðra embættismenn um ástandið þar og aðgerðir alríkisútsendara. Gífurlega spenna er í ríkinu eftir að útsendarar þessir skutu aðra manneskju til bana um helgina. 26. janúar 2026 18:29