Spánverjar unnu Frakka og greiddu leiðina fyrir Alfreð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. janúar 2026 18:39 Ian Barrufet skoraði tíu mörk fyrir Spánverja í sigrinum á Frökkum. getty/Sina Schuldt Spánn gerði sér lítið fyrir og vann nokkuð öruggan sigur á Frakklandi, 36-32, í milliriðli I á Evrópumótinu í handbolta.
Spánverjar fengu þarna sín fyrstu stig í milliriðli I. Þeir eru samt enn á botni hans. Tapið gæti haft mikil áhrif á stöðu Evrópumeistara Frakka og möguleika þeirra á að komast í undanúrslit. Frakkland er í 3. sæti milliriðils I með fjögur stig og mætir Þýskalandi í lokaumferð milliriðlakeppninnar á miðvikudaginn. Vegna taps Frakklands geta þýsku strákarnir hans Alfreðs Gíslasonar tryggt sér sæti í undanúrslitum með því að forðast tap gegn Danmörku í leik sem hefst klukkan 19:30 í kvöld. Ian Barrufet skoraði tíu mörk fyrir spænska liðið sem hafði tapað þremur leikjum á EM í röð fyrir viðureignina í Herning í dag. Jafnræði var með liðunum framan af leik en Spánverjar náðu undirtökunum með góðum kafla þar sem þeir breyttu stöðunni úr 7-8 í 12-8. Spánn leiddi með sex mörkum í hálfleik, 20-14. Mestur varð munurinn á liðunum sjö mörk, 23-16. Frakkar tóku þá við sér og minnkuðu muninn í eitt mark, 26-25. Spánverjar skoruðu hins vegar næstu þrjú mörk og þá var björninn unninn. Á endanum munaði fjórum mörkum á liðunum, 36-32. Sergey Hernández varði fjórtán skot í spænska markinu (33 prósent) og þeir Jan Gurri og Aleix Gómez skoruðu sitt hvor fimm mörkin. Aymeric Minne skoraði sjö mörk fyrir Frakkland og Hugo Descat fimm. Stórskyttan Dika Mem náði sér engan veginn á strik og klúðraði öllum fjórum skotunum sínum.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira