Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Atli Ísleifsson skrifar 26. janúar 2026 08:52 Bjarni Benediktsson með Jóni Ólafi Halldórssyni, formanni SA. SA Bjarni Benediktsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Bjarni hefur áður gegnt embætti forsætisráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra Íslands en hann tekur við stöðunni af Sigríði Margréti Oddsdóttur.
Frá þessu segir í tilkynningu frá SA. Þar segir að Bjarni hafi lokið námi í lögfræði frá Háskóla Íslands, er með meistaragráðu, LL.M. gráðu frá Háskólanum í Miami í Bandaríkjunum, auk þess að vera löggiltur verðbréfamiðlari. „Frá því ég steig til hliðar sem formaður Sjálfstæðisflokksins tók ég mér gott frí og svo þegar þetta mál bar á góma við mig þá fann ég það að ég var tilbúinn að takast á við þetta,“ segir Bjarni í samtali við fréttastofu og að ráðningin hafi átt sér skamman aðdraganda. Hann segir langtímasamninga í gildi fyrir stóran hluta íslensks atvinnulífs sem allir voni að haldi, en á sama tíma séu krefjandi aðstæður fyrir íslenskt atvinnulíf og að mörgu að huga. „Til að byrja með þá mun maður gefa sér tíma til þess að setjast niður með aðildarfélögunum og stjórninni og móta þessar helstu áherslur sem skipta máli við þær breyttu aðstæður sem við erum að glíma við núna.“ Reynt að bæta samfélagið Bjarni segist hafa varið bróðurpartinum af sinni starfsævi í að reyna að bæta samfélagið. „Það má segja að það gangi vel á Íslandi þegar atvinnustarfseminni gengur vel. Það er hátt vaxtastig á Íslandi í dag og ákveðnar væringar á alþjóðasviðinu. Það eru að eiga sér stað breytingar, en í breytingum felast líka mjög mikil tækifæri. Þannig að verkefnið er auðvitað að viðhalda og sækja fram með samkeppnishæfni landsins.“ Hann segist að lokum spenntur fyrir verkefninu. Ég er mjög spenntur fyrir þessu starfi og spenntur fyrir því að vinna með því fólki sem er þarna. Það er mjög öflugt starfslið hjá samtökunum.“ Búi yfir einstakri reynslu Í tilkynningunni er haft eftir Jóni Ólafi Halldórssyni, formanni Samtaka atvinnulífsins, að Bjarni búi yfir einstakri reynslu og innsýn í íslenskt atvinnulíf á mestu umbrotatímum í íslensku samfélagi síðustu áratugi. „Fáir þekkja gangverk samfélagsins jafn vel. Á tímum þar sem íslenskt atvinnulíf stendur frammi fyrir áskorunum og tækifærum sem krefjast öflugrar hagsmunagæslu, skýrra áherslna og náinnar samvinnu lykilaðila í efnahagslífinu er Bjarni Benediktsson ómetanlegur í forystu fyrir íslensk fyrirtæki. Ég hlakka til samstarfsins,“ segir Jón Ólafur. Þá er haft eftir Bjarna að hlutverk Samtaka atvinnulífsins sé mikilvægt og að hann hlakki til þess að starfa með öflugum hópi starfsmanna samtakanna og öllum haghöfum samtakanna að því að styðja íslenskt atvinnulíf til verðmætasköpunar. „Eftir því sem atvinnulífinu gengur betur, þeim mun betri verða lífskjörin og þeim mun sterkara verður landið okkar,“ segir Bjarni. Bjarni tekur við starfinu þann 1. mars næstkomandi af Sigríði Margréti Oddsdóttur sem hefur verið ráðin forstjóri Bláa Lónsins. Um Samtök atvinnulífsins segir að það séu heildarsamtök atvinnulífsins en félagsmenn þeirra séu fjölbreytt fyrirtæki í öllum atvinnugreinum landsins sem samanlagt standa að baki um 70 prósent launagreiðslna á almennum vinnumarkaði. „Framtíðarsýn samtakanna er samfélag hagsældar og tækifæra og hlutverk þeirra er að styðja íslenskt atvinnulíf til verðmætasköpunar og jákvæðra áhrifa á samfélagið allt. Innan Samtaka atvinnulífsins eru sex aðildarsamtök.“ Fréttin hefur verið uppfærð með viðtali við Bjarna Benediktsson, klukkan 09:13 þann 26.1. 2026.
Atvinnurekendur Vistaskipti Sjálfstæðisflokkurinn Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Sjá meira