Sú launahæsta fær 250 milljónir á ári Sindri Sverrisson skrifar 23. janúar 2026 15:17 Trinity Rodman mætti á sérstakan blaðamannafund í gær þar sem tilkynnt var um nýjan samning hennar, með vel skreytta fingur. Getty/Brad Smith Bandaríska landsliðskonan Trinity Rodman hefur skrifað undir nýjan samning við Washington Spirit sem gerir hana að launahæstu fótboltakonu í heimi.
Rodman er enn aðeins 23 ára en hefur með nýja samningnum, sem gildir til ársins 2028, tryggt sér 2 milljónir dollara í árslaun, eða jafnvirði um 250 milljóna króna á ári. Umboðsmaður hennar, Mike Senkowski, sagði við ESPN að þetta þýddi að þessi magnaða dóttir NBA-goðsagnarinnar Dennis Rodman yrði sú launahæsta í heimi. Hún varð samningslaus um síðustu áramót þegar samningur hennar við Spirit rann út. „Þetta er stórkostlegt. Ég er mjög glöð. Þetta er mikil blessun,“ sagði Rodman. „Mér finnst þetta vera sögulegt augnablik sem breytir leiknum. Ég get bara ekki lýst því hvernig mér líður með það,“ sagði Rodman. Samkvæmt BBC var Aitana Bonmati, miðjumaður Barcelona, launahæst á undan Rodman en Bonmati hefur hlotið Gullboltann síðustu þrjú ár í röð. Ljóst er að Rodman tekur stóran skerf af þeim launum sem Spirit er leyfilegt að greiða samkvæmt launaþaki NWSL-deildarinnar í bandaríkjunum. Launaþakið er 3,5 milljónir dollara fyrir hvert lið en stjórn deildarinnar samþykkti nýja reglu í desember sem gerir félögum deildarinnar kleift að verja aukalega 1 milljón dollara á ári vegna leikmanna sem uppfylla ákveðin skilyrði. Rodman varð meistari með Spirit á fyrsta ári sínu með liðinu, árið 2021, og valin nýliði ársins. Hún hefur skorað 11 mörk í 47 leikjum fyrir Ólympíumeistara Bandaríkjanna og skoraði þrjú mörk á leikunum í París 2024.
Bandaríski fótboltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjá meira