Varúðarmörk eru ekki markmið Jóhann Helgi Stefánsson skrifar 23. janúar 2026 08:30 Undanfarna daga hafa talsmenn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) – annars vegar framkvæmdastýran í Viðskiptablaðinu („Tökum umræðuna“) og hins vegar fiskifræðingur SFS á Vísi – vísað í nýja fræðigrein Glover o.fl. og hið svokallaða 4% viðmið. Þar er haldið fram að „allt að 10% ágengi“ eldislaxa sé í lagi fyrir villta stofna og að 4% sé öruggt, vísindalega rökstutt mark. Þetta er dæmi um túlkun vísinda sem byggist ekki á öðru heldur en fjárhagslegum hagsmunum og pólitík. Greinin sem vitnað er til kallar miklu frekar á meiri varúð við íslenskar aðstæður en minni. Hvað segir Glover-rannsóknin í raun? Í greininni er notað líkan (IBSEM) til að herma eftir ágengni eldislaxa í norskan villtan laxastofn í 50 ár. Þegar 5–25% eldislax er á hrygningarstöðum árlega fækkar fullorðnum villtum löxum, og fækkar meira með ágengni. Meðalstærð fiska á hverju aldursstigi eykst; lífshættir verða svipaðir og hjá eldisfiskum. Þegar innflæði stöðvast (frá sleppingum) hefst endurheimt, en hún er hæg og erfðamerki frá eldislaxi sitja eftir til frambúðar í erfðamengi villtra laxa. Rannsóknin sýnir því mælanlegan skaða sem vex með ágengni – ekki að 10% sé saklaust. Hún sýnir líka að náttúrulegt val getur dregið úr hluta skaðans ef tekst að koma í veg fyrir sleppingar. Þetta er mjög langt frá því að vera grænt ljós á áframhaldandi erfðablöndun eins og SFS virðist meina. Ísland er ekki Noregur Íslenskar aðstæður eru líka viðkvæmari en forsendur líkansins sem greinin fjallar um: Íslenskar ár hýsa íslenska erfðafræðilega aðskilda stofna, hver með sína staðbundnu aðlögun. Eldislaxinn hér er norskur SAGA-stofn, kynbættur erlendis og erfðafræðilega fjarlægari íslenskum stofnum en norskur eldislax er norskum villtum stofnum. Náttúrulegt flakk laxa milli áa, sem hingað til hefur haldið uppi fjölbreytileika, getur orðið burðarleið fyrir SAGA-gen þegar þau hafa komist inn í fáar ár. Þetta allt kallar á strangari viðmið en í Noregi. 4% – þak, ekki markmið Rétt er að 4% viðmiðið kemur úr áhættumati Hafrannsóknastofnunar, og að Alþjóða hafrannsóknaráðið segir það samrýmast varúðarreglu. En 4% er skilgreint sem hámark þess ágengis sem líkan má leyfa áður en áhætta telst fara út fyrir varúð – ekki sem „gott“ eða „áhættulaust“ ástand. Þess ber að geta að varúðarmörk þýða aldrei „allt undir þessu er í lagi“, heldur eru varúðarmörk oft skilgreind sem ytri mörk þess sem hægt er að réttlæta tímabundið, miðað við óvissu og pólitíska raunveruleika“. Að snúa 4% – eða jafnvel 10% – upp í ásættanlegt markmið fyrir íslenskar ár er því pólitísk túlkun, ekki vísindaleg niðurstaða. Tökum umræðuna – alla leið Við erum sammála framkvæmdastjóra SFS um að umræðan eigi að byggjast á skynsemi og vísindum. Þá verðum við hins vegar líka að horfast í augu við þau vísindi sem sýna að erfðablöndun eldislaxa dregur úr aðlögunarhæfni, breytir lífsháttum og ógnar langtímalífsgetu villtra stofna – og við búum við þá staðreynd að hér á landi höfum við upplifað regluleg umhverfisslys, óbætt tjón og ógreidda reikninga eftir sleppingar eldislaxa úr sjókvíum. Sem leiðir af sér að við verðum að stoppa í götin á nýja lagareldisfrumvarpinu, líkt og þarf stoppa í götin á sjókvíunum. 0% sem markmið – 4% sem neyðarþak Markmið í vernd villtra íslenskra laxastofna á að vera 0% ágengi eldislaxa í íslenskar ár. 4% viðmiðið má, í hæsta lagi, skilja sem tímabundið neyðarþak í kerfi sem er enn fast í opnu sjókvíaeldi – ekki sem leyfilegt mengunarmark. Strok eldislaxa þarf þó að hafa afleiðingar fyrir rekstraraðilla og það tjón sem strokulaxar valda þarf að vera að fullu bætt til eiganda áa sem fóstra lax. Að lokum, vil ég minna á að hvergi í veröldinni hefur tekist að vera með opið sjókvíaeldi með frjóum fiski án þess að stórskaða villta laxastofna. Það er vísindaleg staðreynd. Höfundur er framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar