Kom ekki á teppið Eiður Þór Árnason skrifar 22. janúar 2026 22:24 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðhera. Vísir/Lýður Valberg Bandarísk yfirvöld hafa ekki brugðist við ákúrum utanríkisráðherra eftir að sendiherraefni þeirra gantaðist með að Bandaríkin gætu tekið yfir Ísland og gert hann að ríkisstjóra landsins. „
Við heyrðum að fyrrverandi þingmaðurinn Billy Long, sem Trump tilnefndi sem sendiherra á Íslandi, hafi grínast við þingmenn í gærkvöldi og sagt að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna og hann yrði ríkisstjóri,“ skrifaði blaðamaður vefmiðilsins Politico þann 14. janúar. Ummælin vöktu megna óánægju. Þingflokksformaður Viðreisnar sagði grínið ógna Íslandi, undirskriftum var safnað þar sem íslensk stjórnvöld voru hvött til að hafna tilnefningu sendiherrans og annar hópur safnaði undirskriftum til stuðnings honum. Þá kallaði utanríkisráðherra fulltrúa bandaríska sendiráðsins á teppið í ráðuneytinu þar sem átti að krefja hann skýringa. Ekki hefur verið skipað í sendiherrastöðuna eftir að Trump tók aftur við sem forseti í byrjun síðasta árs. Svo fór að Long baðst afsökunar á ummælunum og sagði einungis um grín að ræða innan um gamla félaga. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lýsir nú ummælunum sem kjánalegum. Fullveldi ekkert gamanmál „Það er ekki gamanmál að gera grín að fullveldi þjóða. Við tökum því mjög alvarlega. Og þess vegna er þýðingarmikið fyrir okkur að tala meðal annars mjög skýrt með Grænlandi. Því ef að við tölum ekki skýrt þar og stöndum með Grænlandi og fullveldi þess, að þá erum við ekki að standa með sjálfum okkur,“ sagði Þorgerður í samtali við fréttastofu í dag. Lítið sé að frétta af málinu nú sléttri viku eftir að hún krafðist viðbragða. „Ég hef ekkert meira um þetta að segja nema að ég hef kallað eftir viðbrögðum og skýringu frá stjórnvöldum í Bandaríkjunum varðandi þetta.“ Hefur ekkert komið frá sendiráðinu? „Ég hef ekki fengið svar en það hlýtur að berast einn daginn. Ég bara undirstrika það sem ég sagði um daginn. Mér var ekki skemmt yfir þessu þó að það séu ýmsir sem hafi fundist þetta bara sniðugt hérna heima. Mér finnst það skringileg nálgun því við erum í þessum heimi þar sem er verið að takast á um fullveldi, inngrip og fleira. Þá verðum við að taka öllu svona af skynsemi og yfirvegun en af festu.“ Áður gantast með Ísland Bandaríkjastjórn hefur tilnefnt Long sem næsta sendiherra á Íslandi en hann hefur þó enn ekki verið skipaður af öldungadeild þingsins. Long er íhaldssamur repúblikani sem tók fyrst sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fyrir heimaríki sitt Missouri árið 2011. Þar sat hann í sex kjörtímabil til ársins 2023. Áður hafði hann meðal annars unnið sem uppboðshaldari og fasteignasali á heimaslóðum. Hinn 69 ára gamli Long var skattstjóri Bandaríkjanna í innan við tvo mánuði, skemur en nokkur annar í sögu stofnunarinnar. Dagana áður en Long var sparkað frá skattinum hafði slegið í brýnu á milli stofnunarinnar og Hvíta hússins vegna upplýsinga sem það falaðist eftir til þess að hafa hendur í hári fólks sem er sakað um að dvelja ólöglega í Bandaríkjunum. Ísland hefur áður verið skotspónn hins gamansama Long. Í færslu sem hann birti eftir að hann var tilnefndur sendiherra á Íslandi gerði hann að því skóna að forsetinn hefði misskilið ósk hans um að fá að ganga til liðs við ICE, innflytjendastofnun Bandaríkjanna, og sent hann til Íslands í staðinn.
Bandaríkin Utanríkismál Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Sendiráð á Íslandi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Safna undirskriftum og segja Þorgerði að taka Long opnum örmum Undirskriftasöfnun er hafin til stuðnings Billy Long, sendiherraefni Bandaríkjanna gagnvart Íslandi, en sá vakti hörð viðbrögð þegar hann gantaðist með að Ísland gæti orðið 52. ríki Bandaríkjanna á eftir Grænlandi. 15. janúar 2026 22:57 Kallar fulltrúa sendiráðsins á teppið: „Mér er ekki skemmt“ Fulltrúi bandaríska sendiráðsins á Íslandi hefur verið kallaður á teppið í utanríkisráðuneytinu í dag þar sem hann verður krafinn skýringa um meint ummæli mögulegs sendiherraefnis Bandaríkjanna gagnvart Íslandi. Skorað hefur verið á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra að bregðast við vegna brandara Billy Long um að gera ætti Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna. 15. janúar 2026 17:04 Sendiherraefnið biðst afsökunar Billy Long, mögulegur sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um að gera Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna. Einungis hafi verið um grín að ræða. 15. janúar 2026 15:20 Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Væntanlegur sendiherra Bandaríkjanna hér á landi og fyrrverandi þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings grínaðist með það við þingmenn í gær að Ísland yrði 52. ríkið og að hann yrði ríkisstjóri. Í þinginu eru nú stíf fundarhöld um fjárlög þar sem menn róa öllum árum að því að koma í veg fyrir aðra lokun ríkisstofnana. 14. janúar 2026 14:29 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira
Safna undirskriftum og segja Þorgerði að taka Long opnum örmum Undirskriftasöfnun er hafin til stuðnings Billy Long, sendiherraefni Bandaríkjanna gagnvart Íslandi, en sá vakti hörð viðbrögð þegar hann gantaðist með að Ísland gæti orðið 52. ríki Bandaríkjanna á eftir Grænlandi. 15. janúar 2026 22:57
Kallar fulltrúa sendiráðsins á teppið: „Mér er ekki skemmt“ Fulltrúi bandaríska sendiráðsins á Íslandi hefur verið kallaður á teppið í utanríkisráðuneytinu í dag þar sem hann verður krafinn skýringa um meint ummæli mögulegs sendiherraefnis Bandaríkjanna gagnvart Íslandi. Skorað hefur verið á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra að bregðast við vegna brandara Billy Long um að gera ætti Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna. 15. janúar 2026 17:04
Sendiherraefnið biðst afsökunar Billy Long, mögulegur sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um að gera Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna. Einungis hafi verið um grín að ræða. 15. janúar 2026 15:20
Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Væntanlegur sendiherra Bandaríkjanna hér á landi og fyrrverandi þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings grínaðist með það við þingmenn í gær að Ísland yrði 52. ríkið og að hann yrði ríkisstjóri. Í þinginu eru nú stíf fundarhöld um fjárlög þar sem menn róa öllum árum að því að koma í veg fyrir aðra lokun ríkisstofnana. 14. janúar 2026 14:29