Hvalveiðar í sviðsljósinu Elissa Phillips skrifar 20. janúar 2026 12:03 Við Anahita erum aftur í sviðsljósinu. Í þessari viku erum við að horfast í augu við afleiðingar mótmælaaðgerða okkar. Sakamálið á Íslandi verður loks tekið fyrir þann 22. janúar. Við vorum handteknar fyrir borgaralega óhlýðni, þar sem við mótmæltum friðsamlega hvalveiðum í atvinnuskyni. Þrátt fyrir að við höfum alltaf verið tilbúnar að axla ábyrgð, bjuggumst við ekki við því að málið myndi dragast svona mikið á langinn - í yfir tvö ár! Nú þegar aðalmeðferð nálgast í Héraðsdómi Reykjavíkur er áhersla okkar að halda hvölum í fréttunum. Við höldum áfram að þrýsta á stjórnvöld að banna hvalveiðar alfarið og til frambúðar. Í hreinskilni sagt finnst mér hugmyndin um að klifra aftur upp í mastur vera minna ógnvekjandi en að mæta fyrir dómstóla. Auðvitað hefur þetta persónuleg áhrif á okkur, en í stærra samhengi er réttarhöldunum ætlað að vera sjónarspil til að draga athyglina frá raunveruleikanum: grimmilegum drápum á langreyðum, hvalategund í útrýmingarhættu. Allt þetta minnir helst á handrit fyrir Hollywood kvikmynd. Þar er helsta illmennið, Kristján Loftsson, sem kallar sig sjálfur „kaptein Ahab” (aðalpersóna Moby Dick). Hann er stoltur af því að drepa hvali. Að auki hafa komið fram leynilegar upptökur af sviksamlegum samskiptum, sem sanna klíkuskap milli hans og stjórnvalda. Brot á lögum og harðar lögregluaðgerðir koma við sögu í þessu handriti. En það eru einungis við Anahita sem þurfum að taka afleiðingunum. Mikið er gert úr því að við höfum reynt að stöðva veiðarnar með líkama okkar. Kaldhæðnin er sú að við vorum í raun að framfylgja íslenskum dýraverndarlögum með friðsamlegum hætti. Við ollum engu tjóni. Skipin sem við stigum um borð í sigldu til veiða með sprengiskutla, hannaða til að drepa langreyðar. Sambærileg mótmæli hafa átt sér stað áður, án nokkurra aðgerða lögreglu. Við erum kynntar sem glæpamenn, á meðan hvalveiðilögin eru enn óbreytt. Undanfarna mánuði höfum við tvisvar haft beint samband við atvinnuvegaráðherra, Hönnu Katrínu Friðriksson, um þetta mál án þess að fá svar. Í lok síðustu viku ítrekaði hún í fjölmiðlum áform sín um að banna hvalveiðar alfarið, sem eru frábær tíðindi og sýnir þá hugrökku afstöðu sem þarf! Hins vegar hefur ákvörðuninni enn á ný verið frestað fram á haust. Það þýðir að með núverandi illa fengnu leyfi frá sitjandi ráðherra í lok 2024 gætu hvalveiðar átt sér stað sumarið 2026. Við hefðum getað samþykkt sektina strax við handtökuna. Við kusum að láta málið fara fyrir dóm. Okkur hefur ítrekað verið sagt hversu ólíklegt það sé að við vinnum málið. Við stöndum við gjörðir okkar og vitum hvers vegna við fórum um borð í hvalveiðibátana. Eftir margra ára baráttu, þar sem við höfum séð íslensk lög bregðast hvölunum aftur og aftur, gerðum við það eina sem eftir stóð og settum okkur sjálfar í veg fyrir brottför bátanna. Hvort sem fólk er sammála aðgerðum okkar eða ekki, þá stendur sú staðreynd eftir að við mótmæltum friðsamlega og að hvalirnir tilheyra ekki Íslandi. Þeir eru villt dýr sem ferðast langar leiðir um höfin með viðkomu við Ísland, þeir ekki skilið að vera skotnir að undirlagi hégómlegs manns sem veit ekki aura sinna tal. Höfundur er framkvæmdastjóri Incredible Oceans í Bretlandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mótmæli í tunnum Hvals 8 og 9 Hvalveiðar Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar