Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Kjartan Kjartansson skrifar 19. janúar 2026 11:15 Stuðningsmenn Úkraínu með grímur af Trump og Pútín við Brandenborgarhliðið í Berlín. Vísir/EPA Bandaríkjaforseti hefur boðið Vladímír Pútín, forseta Rússlands, sæti í svonefndu „friðarráði“ sínu um uppbyggingu Gasastrandarinnar. Ekki er ljóst hvort að sömu kröfur verði gerðar til Pútín og til annarra leiðtoga sem eru sagðir hafa fengið slíkt boð.
Stjórnvöld í Kreml greindu frá því í dag að Donald Trump hefði sent Pútín forseta boð um sæti í „friðarráði“ um stjórn og uppbyggingu Gasastrandarinnar eftir hernað Ísraela þar. Dmitrí Peskov, talsmaður Pútíns, segir að rússnesk stjórnvöld reyni nú að átta sig á smáatriðunum í tilboðinu í samræði við stjórnvöld í Washington. Vestrænir fjölmiðlar hafa greint því að Trump ætli að krefja leiðtoga um milljarð dollara ef þeir vilja taka varanlegt sæti í ráðinu. Friðarráðið var stofnað með blessun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í nóvember en því var ætlað að fylgja eftir vopnahléi Ísraels og Hamas-samtakanna. Trump er sagður verða fyrsti formaður þess og hafa neitunarvald um ákvarðanir þess. Á meðal þeirra sem eru sagðir hafa fengið boð í ráðið er Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, og Javier Milei, forseti Argentínu.
Bandaríkin Donald Trump Palestína Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Rússland Vladimír Pútín Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira