Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Aron Guðmundsson skrifar 18. janúar 2026 21:30 Það varð allt vitlaust í úrslitaleik Marokkó og Senegal í Afríkukeppninni. Vísir/Getty Það varð allt vitlaust undir lok uppbótartíma venjulegs leiktíma í úrslitaleik Afríkukeppninnar í fótbolta í kvöld og landslið Senegal yfirgaf völlinn eftir óskiljanlegar ákvarðanir dómara leiksins en stóð svo á endanum uppi sem Afríkumeistari.
Þegar langt var liðið á uppbótartíma venjulegs leiktíma í úrslitaleik Marokkó og Senegal, ákvað dómari leiksins að dæma vítaspyrnu, Marokkó í hag, fyrir afar litlar sakir í stöðunni 0-0 og það var þá sem allt varð vitlaust. Skömmu áður hafði Ismaila Sarr komið boltanum í netið fyrir Senegal en markið stóð ekki þar sem dómarinn hafði skömmu áður en boltinn fór yfir línuna gefið Marokkó aukaspyrnu fyrir það sem aftur verður að teljast afar litlar sakir. Þegar að dómari leiksins, Jean-Jacques Ndala, dæmdi vítaspyrnu skipaði bálreiður Pape Thiaw, landsliðsþjálfari Senegal, leikmönnum sínum að yfirgefa völlinn í mótmælaskyni. Það varð allt brjálað innan vallar sem og upp í stúku eftir ákvarðanir dómarans sem ræddi við þjálfara beggja liða í kjölfarið. Þau samtöl báru ekki árangur og strunsaði Thiaw með alla leikmenn sína, nema Sadio Mané, inn til búningsherbergja. Svipmyndir frá Stade Prince Moulay Abdallah í Marokkó þar sem úrslitaleikur Senegal og heimamanna fer fram. Vísir/Getty Það var Mané sjálfur sem fékk liðsfélaga sína til þess að snúa aftur inn á völlinn. Vítaspyrnudómur Jean-Jacques stóð og það var Brahím Díaz sem tók spyrnuna fyrir Marokkó. Svo fór að hann reyndi Paneka spyrnu af vítapunktinum, það er að segja lyfti honum mjúklega beint í átt að miðju marksins. Edouard Mendy, markvörður Senegal, átti ekki í vandræðum með að verja hana, þurfti bara að standa kyrr á línunni og það gerði hann. Leiktíminn rann út, staðan enn markalaus og grípa þurfti til framlengingar. Þar skoraði Pape Gueye mark fyrir Senegal sem reyndist að lokum sigurmark leiksins og liðið sem var nóg boðið á einum tímapunkti og yfirgaf völlinn, sneri aftur, sótti sigur og er nú Afríkumeistari. Pape Gueye fagnar marki sínu í framlengingunni af mikilli innlifunVísir/Getty Þetta er í annað skipti í sögunni sem Senegal verður Afríkumeistari í fótbolta en liðið vann mótið einnig árið 2021, þá í fyrsta skipti.
Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Frakkar vilja Infantino burt Fótbolti Fleiri fréttir Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Sjá meira