Börn útvistuð til glæpa á netinu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 19. janúar 2026 08:00 Við sem ólumst upp áður en internetið og hinn stafræni heimur komu til sögunnar getum borið saman tímana tvenna. Tilkoma þessarar tækni hefur leitt til margra nýunga og kannski meiri samfélagsbreytinga en við áttum okkur á. Tæknin hefur óumdeilanlega haft jákvæð áhrif. Þar má helst nefna styttri boðleiðir, aukið og einfaldað aðgengi að upplýsingum og fræðslu, einföldun þjónustu og aukin samskipti án tillits til gæða samskiptanna. Netið hefur breytt og aukið aðgengi almennings að þjónustu opinberra stofnanna. Það hefur einnig aukið gæði og öryggi opinberra upplýsinga. Þetta allt eflir traust og skilning okkar á samfélaginu, réttindunum okkar og skyldum. Þegar horft er til breytinga á samskiptum má segja að heimurinn hafi hreinlega skroppið saman. Bréfleg skilaboð sem áður fóru milli manna tóku oft óratíma að berast með hestum, bifreiðum, skipum og síðar flugi. Í dag berast samskipti á sekúndubroti heimshornanna á milli og ekkert þykir sjálfsagðara en að eiga lifandi myndræn samskipti í rauntíma. Neikvæð áhrif netsins Neikvæð áhrif netsins eru að sama skapi óumdeilanleg. Börn og margir fullorðnir eru berskjölduð gagnvart skaðlegu efni, áreiti, áreitni og ofbeldi. Sem betur fer hefur fólk einnig lært að varast eða bregðast við þessum neikvæðu hliðum. Fólk sem komið er til vits og ára og hefur jafnframt fengið viðeigandi fræðslu veit hvað ber að forðast. Þetta er þó hvergi nærri skothelt því blekkingar á netinu þróast hratt. Svikarar og glæpamenn villa á sér heimildir, þróa sífellt meira sannfærandi tilboð um gæfu, gull og gott gengi allt eftir því hver ásetningur viðkomandi geranda er. Það allra versta á netinu er misnotkun á börnum Netið er orðið helsti vettvangur skipulagðrar glæpastarfsemi og næsta víst að þar sjáum við aðeins toppinn á ísjakanum. Hið stafræna umhverfi veitir glæpahópum háþróuð verkfæri og nýjar leiðir til að stunda ólöglega starfsemi. Netið er notað til sölu og smygls á fíkniefnum, peningaþvættis, vopnasölu, skipulagðrar hryðjuverkastarfsemi, mansals, kynferðisglæpa og alls konar svika og svindls, efnahagsbrota og skemmdar- og umhverfisbrota. Stórtækir glæpahópar nýta sér viðkvæma einstaklinga í gegnum netið og samfélagsmiðlar þjóna sem samhæfingarmiðstöðvar til að laða börn og fullorðna að ýmsu vafasömu atferli. Börn tæld eða þvinguð til glæpaverka Á öllum tímum hafa skipulagðir glæpahópar notað fjölbreyttar leiðir til að komast í tæri við ungmenni undir alls konar yfirskini. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu og fleiri aðilum hefur þessi starfsemi aukist mikið. Í frétt á visi.is árið 2007 kom fram að börn undir tíu ára aldri voru grunuð í nær þrjú þúsund sakamálum á Englandi og í Wales árið 2006. Nær helmingur þessara glæpa, um1.300, tengdust skemmdarverkum eða íkveikjum. Fréttir berast af því að glæpahópar noti tölvuleiki og samfélagsmiðla í vaxandi mæli til að fá börn og ungmenni til að fremja glæpi. Glæpamenn nálgast börnin á spjallsíðum og bjóða þeim peninga fyrir að fremja skemmdarverk og jafnvel morð. Fjölmörg dæmi eru um að börn eru fengin til að senda upptökur af sjálfum sér að skaða sig og þau jafnvel hvött til að svipta sig lífi. Dæmi eru um að allt niður í níu ára börn hafi lent í klóm þessara glæpamanna. Framkvæmdarstjóri Europol hefur ítrekað tjáð sig um þessi mál í fjölmiðlum. Til að ná að uppræta þennan óhugnað sé nauðsynlegt að byggja upp traust og samvinnu milli þjóða. Foreldrarnir í framlínunni Margt þarf að koma til í fræðslu og forvörnum en umfram allt er mikilvægast að foreldrar og forráðamenn barna séu meðvitaðir um hætturnar. Þau fylgist grannt með því sem börnin aðhafast á netinu. Foreldrar eru í lang sterkustu stöðunni til að fylgjast með við hverja barnið hefur samskipti. Foreldrar eru einnig í bestu aðstöðunni til að ræða þessi mál við börn sín, fræða þau og upplýsa. Tryggasta leiðin er að vera í þéttu og góðu sambandi við börnin. Eiga traust þeirra til að tala um allt milli himins og jarðar. Góð tengsl foreldra barna er besta forvörnin gegn allri vá sem herja kann á barnið. Það er því mjög mikilvægt að rækta jákvæðar samskiptaleiðir og vera ávallt tilbúin að hlusta án þess að dæma. Heimsókn til Europol og Eurojust Fulltrúar í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis eru nýkomnir úr heimsókn til Haag í Hollandi þar sem nefndarfólk kynnti sér meðal annars löggæslusamstarf innan Evrópu. Nefndin heimsótti Europol og Eurojust. Þetta var lærdómsrík heimsókn sem opnaði augu okkar enn frekar fyrir alvarlegri stöðu í málaflokki skipulagðrar glæpastarfsemi í heiminum í dag. Europol þjónar sem samhæfingarmiðstöð í upplýsingaöflun og stuðningi við aðildarríki Evrópusambandsins og fleiri ríki þeirra á meðal Ísland. Ríkin vinna þannig sameiginlega gegn ýmsum gerðum alvarlegrar og skipulagðrar glæpastarfsemi, sem og hryðjuverkastarfsemi. Erurojust var stofnað til að bæta meðferð alvarlegra landamærabrota og skipulagðra glæpa með því að hvetja til samvinnu rannsóknar- og saksóknaraembætta ríkja í milli. Innan Eurojust er samstarfshópur dómara, saksóknara, lögreglu og fleiri aðila frá hverju hinna tuttugu og sjö aðildarríkjum ESB. Mikilvægt alþjóðlegt samstarf Vaxandi skipulögð glæpastarfsemi á netinu krefst nýstárlegra rannsóknaraðferða og alþjóðlegs samstarfs. Engin þjóð er laus við glæpi á netinu. Alþjóðlegt samstarf og miðlun upplýsinga skiptir höfuðmáli við að uppræta skipuleggjendur glæpasamtaka. Öðruvísi næst ekki að stöðva þessa glæpi. Sú vinna sem fram fer hjá Europol og Eurojust er ómetanleg. Þar er vettvangur til að safna upplýsingum víðs vegar að og deila þeim og dreifa til samstarfslanda. Þannig er hægt að stilla saman strengi í baráttunni gegn skipulögðum glæpagengjum. Brotin eiga sér oft stað í mörgum löndum samtímis og netið gegnir lykilhlutverki í skipulagningu og framkvæmd alls kyns glæpa. Íslendingar eru lánsamir að vera hluti af þessu samstarfi. Þar erum við ekki aðeins þiggjendur heldur leggjum við einnig okkar að mörkum. Mörg dæmi eru um að upplýsingar frá Íslandi hafi lagt lóð á vogarskálar við að uppræta glæpi í öðrum löndum. Til að vera fullgildur aðili að þessu mikilvæga samstarfi Evrópusamstarfsríkjanna og njóta alls þess sem það hefur að bjóða þurfa ríki að vera aðilar að ESB. Þar sem Ísland er ekki fullgildur aðili að ESB höfum við ekki beinan aðgang að gagnagrunni Europol. Í þessari baráttu vill enginn vera einn og einangraður. Glæpum og glæpasamtökum á netinu á eftir að fjölga og glæpasamtök sem fyrir eru eiga eftir að eflast ef ekki er spornað skipulega við þeim af afli. Það verður aðeins gert með því að efla enn frekar samstarf og upplýsingagjöf lögregluembætta í Evrópu. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira