Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Agnar Már Másson skrifar 16. janúar 2026 19:12 „Skaðinn er skeður,“ segir varabæjarfulltrúi í Kópavogi en verktakar hófu niðurrif á húsnæði gamla félagsheimilisins við Fannborg 2 í leyfisleysi. Vísir/Lýður Byggingafulltrúi Kópavogsbæjar stöðvaði í dag verktaka sem höfðu hafist handa við niðurrif á húsnæði þar sem félagsheimili Kópavogs var áður, án þess að hafa tilskilið leyfi. Varabæjarfulltrúi segir að framkvæmdin öll sé „eitt allsherjarklúður af hálfu Kópavogsbæjar.“
Hákon Gunnarsson, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi og íbúi við Fannborg, segir frá þessu í samtali við fréttastofu. Hann útskýrir að fyrir tæpum átta árum hafi Kópavogsbær selt eignir sínar við Fannborg 2, 4 og 6, þar sem gamla félagsheimilið hafi verið til húsa, til félagsins Árkórs. Lóðarhafinn hafi svo lagt fram deiliskipulag sem hafi síðan verið samþykkt í bæjarstjórn með naumum meirihluta. Hákon segir að illa hafi gengið að koma framkvæmdum af stað, meðal annars vegna ósættis meðal íbúa og nágranna á svæðinu og það hafi tafist von úr viti að gefa út byggingarleyfi. Framkvæmdir við félagsheimili Kópavogs Fannborg 2Vísir/Lýður „Það er ekki enn komið lögformlegt niðurrifsleyfi, en það er komið einhvers konar framkvæmdaleyfi til þess að undirbúa niðurrif á þessari byggingu,“ útskýrir varaborgarfulltrúinn. Þannig hafi verktakar hafist handa í vikunni við að rífa innan úr byggingunum og tæma þær, þó enn lægi ekki heimild fyrir niðurrifi á húsinu sjálfu. „En í dag hefja þeir niðurrif,“ segir varabæjarfulltrúinn. Byggingafulltrúi hafi þá komið á staðinn og stöðvað niðurrifið vegna þess að ekki væri komið leyfi. „En skaðinn er skeður.“ Hákon Gunnarsson, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi.Aðsend Hákon segir að töfin á framkvæmdunum hafi valdið gríðarlegu fjárhagslegu tjóni fyrir bæinn. „Og reyndar er það svo — ég sit í skipulagsráði þannig að ég þekki þetta mál vel og sömuleiðis er ég íbúi þarna — að það er mikil ósátt meðal Kópavogsbúa með þessa framkvæmd,“ meinar Hákon. Hann segir að bæjaryfirvöld hafi afhent skipulagsvald á einu verðmætasta svæði bæjarins gagnrýnislaust til verktaka. „Málið er bara eitt allsherjarklúður af hálfu Kópavogsbæjar.“
Kópavogur Skipulag Húsavernd Tengdar fréttir Verði svo gott sem heimilislaus í Kópavogi Tímamót í uppbyggingu miðbæjarins í Kópavogi urðu í morgun þegar bæjarstjórn samþykkti samning við verktaka. Hamraborg mun gjörbreytast en fatlaður íbúi segir að hann verði svo gott sem heimilislaus á meðan framkvæmdum stendur og segir íbúð sína orðna verðlausa. 3. júlí 2025 19:07 25 metrar í Fannborg Landrými eru takmörkuð gæði. Lykilatriði í stjórnun sveitarfélaga er að ráðstöfun og úthlutun á landi sé stýrt þannig að íbúar njóti þess fjárhagslega – en ekki síst að skapa aðlaðandi og eftirsóknarvert samfélag. 24. júní 2025 13:02 Segir vegið að rétti fatlaðra við uppbyggingu á Fannborgar- og Traðarreit Kolbeinn Reginsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, segir vegið að rétti fatlaðra í uppbyggingu á Fannborgar- og Traðarreit í Kópavogi. Bílastæði verði í mikilli fjarlægð og hreyfihamlaðir geti þurft að fara allt að hálfan kílómeter fram og til baka í bílastæði. 2. júní 2025 14:17 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Verði svo gott sem heimilislaus í Kópavogi Tímamót í uppbyggingu miðbæjarins í Kópavogi urðu í morgun þegar bæjarstjórn samþykkti samning við verktaka. Hamraborg mun gjörbreytast en fatlaður íbúi segir að hann verði svo gott sem heimilislaus á meðan framkvæmdum stendur og segir íbúð sína orðna verðlausa. 3. júlí 2025 19:07
25 metrar í Fannborg Landrými eru takmörkuð gæði. Lykilatriði í stjórnun sveitarfélaga er að ráðstöfun og úthlutun á landi sé stýrt þannig að íbúar njóti þess fjárhagslega – en ekki síst að skapa aðlaðandi og eftirsóknarvert samfélag. 24. júní 2025 13:02
Segir vegið að rétti fatlaðra við uppbyggingu á Fannborgar- og Traðarreit Kolbeinn Reginsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, segir vegið að rétti fatlaðra í uppbyggingu á Fannborgar- og Traðarreit í Kópavogi. Bílastæði verði í mikilli fjarlægð og hreyfihamlaðir geti þurft að fara allt að hálfan kílómeter fram og til baka í bílastæði. 2. júní 2025 14:17