Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Árni Sæberg skrifar 12. janúar 2026 14:04 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hækkaði vörugjöld hressilega milli ára. Vísir/Anton Brink Greiningardeild Landsbankans telur að breytingar á gjaldtöku hins opinbera af rekstri og kaupum ökutækja gætu aukið verðbólgu um 0,7 prósentustig. Óvíst sé hvort áhrifin komi fram að öllu leyti í janúar eða dreifist yfir næstu mánuði, en telja megi að það velti ekki síst á eftirspurn eftir bílum í byrjun árs.
Frá og með áramótum er öllum eigendum ökutækja óháð orkugjafa skylt að greiða kílómetragjald. Gjaldið fer eftir þyngd ökutækisins en öll ökutæki undir 3500 kílóum, sem er viðmiðið fyrir hefðbundin ökuréttindi, borga sama gjald eða 6,95 krónur á hvern ekinn kílómetra. Samhliða lækkar gjald á eldsneyti líkt og komið hefur fram. Í nýrri hagsjá greiningardeildar Landsbankans segir að kílómetragjaldið komi nn í mælingar Hagstofunnar á verðbólgu nú í janúar. Meðalkostnaður hækkar um 6,5 prósent Breytingin muni hafa misjöfn áhrif á ólíkar tegundir bíla. Rekstrarkostnaður rafmagnsbíla hækki um 9,5 prósent, að hleðslukostnaði óbreyttum. Rekstrarkostnaður eyðsluminni bíla hækki einnig en hann minnki á eyðslumiklum bílum. „Að teknu tilliti til samsetningar bílaflotans ætti meðalkostnaður fyrir eldsneyti og kílómetragjald að hækka um 6,5 prósent á milli ára, á hvern bíl, sem myndi auka verðbólgu í janúar um 0,2 prósentustig, að öðru óbreyttu. Hagstofan mun setja kílómetragjald undir liðinn „veggjöld“ í vísitölu neysluverðs og erfitt er að segja til um það hvernig vogin fyrir veggjöld verður útfærð.“ Verð hækki um allt að átta prósent Þá segir að um áramótin hafi einnig verið gerð breyting á vörugjöldum á ökutæki. Sérstakt fimm prósenta vörugjald hafi verið fellt niður af rafmagnsbílum en hækkað í tíu prósent á bensín- og díselbíla. Útreikningi á vörugjöldum sem fara eftir CO2 útblæstri bíla hafi einnig verið breytt, sem leiði til töluverðrar hækkunar á verði lítilla og meðalstórra bensín- og díselbíla og hlutfallslega meiri hækkunar en á stórum jeppum með mikinn útblástur. „Fyrir flesta bíla sem ganga fyrir bensíni eða dísil gætu vörugjöldin hækkað verð um í kringum 20 prósent. Fyrir stóra jeppa er hækkunin minni, nær sjö til átta prósentum, þar sem þeir greiddu töluverð gjöld fyrir og voru nær hámarksvörugjöldum en minni bílar. Breytingar á vörugjöldum hafa áhrif til lækkunar á verði á rafmagnsbílum, en á móti var styrkur til rafmagnsbílakaupa lækkaður úr 900 þúsund í 500 þúsund og verð á rafbílum gæti því hækkað um tvö til þrjú prósent.“ Hagstofan mæli aðeins verð á nýjum bílum í vísitölu neysluverðs og taki ekki tillit til kaupa bílaleiga í verðbólgumælingum. Heimili kaupi í auknum mæli rafmagnsbíla umfram aðra bíla. Hlutfall þeirra nemi nú um 50 til 60 prósentum af bílakaupum heimila og haldi áfram að hækka. Breytingar á verði rafmagnsbíla hafi því sífellt meiri áhrif á verðmælingar Hagstofunnar en breytingar á verði á bensín- og díselbílum. „Að teknu tilliti til hlutdeildar ólíkra bílategunda í neyslukörfu heimilanna teljum við að breyting vörugjalda geti haft í för með sér allt að 8 prósenta hækkun á verðmati Hagstofunnar á kaupum á nýjum bílum. Við það má ætla að verðbólga aukist um 0,5 prósentustig, að öðru óbreyttu. Áhrifin af þessari hækkun þurfa ekki endilega að koma fram strax í janúar en þó á allra næstu mánuðum.“
Kílómetragjald Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Landsbankinn Fjármálafyrirtæki Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Viðskipti innlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Sjá meira