Náið fylgst með stöðu mála í Venesúela hjá Útlendingastofnun Lovísa Arnardóttir skrifar 10. janúar 2026 16:41 Alls eru 70 umsóknir Venesúelabúa um alþjóðlega vernd til meðferðar hjá Útlendingastofnun. Vísir/Vilhelm Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að endurskoða 24 verkbeiðnir vegna ríkisborgara frá Venesúela sem flytja á til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun fylgist starfsfólk náið með stöðunni. Alls eru óafgreiddar 70 umsóknir Útlendingastofnunar um vernd frá ríkisborgurum Venesúela.
Samkvæmt upplýsingum frá heimferða- og fylgdadeild ríkislögreglustjóra, sem sér um að framfylgja brottvísunum þeirra sem hafa fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd, var síðasta fylgd til Venesúela þann 7. október á síðasta ári. Deildin er með 24 verkbeiðnir vegna ríkisborgara Venesúela til Venesúela. Engin ferð hefur verið skipulögð í þessum mánuði og segir í svari frá deildinni að það sé í höndum Útlendingastofnunar að endurskoða slíkar ákvarðanir. Um 150 umsóknir frá Venesúela í fyrra Nýjasta tölfræðin sem er á vef Útlendingastofnunar er frá því í desember fyrir janúar til nóvember síðasta árs. Þar kemur fram að alls hafi 147 einstaklingar frá Venesúela sótt um vernd á Íslandi frá janúar til nóvember. Þá hafði umsóknum 82 einstaklinga frá Venesúela verið synjað og 32 fengið vernd á Íslandi frá Venesúela. Þar er einnig fjallað um aðstoð við sjálfviljuga brottför heim. Alls voru þá 260 beiðnir frá einstaklingum frá Venesúela óafgreiddar og þá búið að afgreiða 345 beiðnir um slíka brottför alls á síðasta ári. „Útlendingastofnun fylgist náið með stöðunni í Venesúela og hefur bæði átt samskipti við systurstofnanir sínar á Norðurlöndum og tengilið stofnunarinnar hjá IOM (Alþjóðlegu fólksflutningastofnuninni), sem staddur er í Caracas, varðandi mat á stöðunni. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að endurskoða þessar verkbeiðnir en áfram verður fylgst náið með ástandinu,“ segir Þórhildur Líndal, upplýsingafulltrúi Útlendingastofnunar, í skriflegu svari til fréttastofu. Óvissa um stjórn Töluverð óvissa er um stjórn landsins eftir að Bandaríkjamenn námu Nicilás Maduro, forseta landsins, á brott í hernaðaraðgerð um síðustu helgi. Delcy Rodríguez varaforseti tók við embætti forseta en Donald Trump forseti Bandaríkjanna lýsti því yfir, eftir að Maduro var numinn á brott, að Bandaríkin tækju við stjórn þar til hægt væri að tryggja örugg og réttlát valdaskipti. Trump hefur lýst því yfir að hann ætli að hitta Maríu Corina Machado, leiðtoga stjórnarandstæðunnar í Venesúela, í næstu viku. Hann sagði þó eftir að Maduro var numinn á brott að Machado gæti ekki leitt landið að svo stöddu. Hún nyti ekki nægrar virðingar.
Hælisleitendur Innflytjendamál Venesúela Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Donald Trump Tengdar fréttir Ítrekaðar íhlutanir í „bakgarði“ Bandaríkjanna Árás Bandaríkjastjórnar á Venesúela um helgina var fyrsta hernaðaraðgerð hennar í Rómönsku Ameríku á þessari öld. Bandaríkin eiga sér hins vegar aldalanga sögu íhlutana í heimshluta sem þarlendir ráðamenn hafa oft skilgreint sem „bakgarð“ þeirra. 5. janúar 2026 15:03 Maduro, Diddy og Mangione í sama fangelsi Stuttu eftir að bandarísk herþota með Nicolás Maduro forseta Venesúela og eiginkonu hans Ciliu Flores lenti á flugvelli skammt frá New York-borg voru hjónin flogin með þyrlu í eitt alræmdasta fangelsi Bandaríkjanna: Metropolitan detention center. Þar dvelur einnig Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa myrt forstjóra UnitedHealthcare, og þangað til nýlega Sean Combs, betur þekktur sem P Diddy. 7. janúar 2026 18:10 „Það mun reyna á okkur hér“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, kveðst sátt við þau svör og skýringar sem utanríkisráðherra hafi veitt á fundi utanríkismálanefndar í morgun vegna þeirrar stöðu sem uppi er eftir aðgerðir Bandaríkjanna gegn Venesúela um helgina. Hún telur ljóst að aðgerðirnar stangist á við alþjóðalög en hún væntir þess að þingnefndin muni eiga enn reglulegri fundi með utanríkisráðherra og fulltrúum ráðuneytisins í ljósi þeirra víðsjárverðu tíma sem uppi eru í alþjóðakerfinu. Það muni reyna enn frekar á stjórnmálamenn hér sem annars staðar að takast á við nýjan veruleika. 5. janúar 2026 15:10 Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Drengirnir hafi látið vita af sér Innlent Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Erlent Fleiri fréttir Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætt í flokknum eftir að honum blöskraði samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Dularfullt drónaflug í Kópavogi vekur íbúum ugg Gæti þaggað niður í röddum landsbyggðarinnar Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Sjá meira
Ítrekaðar íhlutanir í „bakgarði“ Bandaríkjanna Árás Bandaríkjastjórnar á Venesúela um helgina var fyrsta hernaðaraðgerð hennar í Rómönsku Ameríku á þessari öld. Bandaríkin eiga sér hins vegar aldalanga sögu íhlutana í heimshluta sem þarlendir ráðamenn hafa oft skilgreint sem „bakgarð“ þeirra. 5. janúar 2026 15:03
Maduro, Diddy og Mangione í sama fangelsi Stuttu eftir að bandarísk herþota með Nicolás Maduro forseta Venesúela og eiginkonu hans Ciliu Flores lenti á flugvelli skammt frá New York-borg voru hjónin flogin með þyrlu í eitt alræmdasta fangelsi Bandaríkjanna: Metropolitan detention center. Þar dvelur einnig Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa myrt forstjóra UnitedHealthcare, og þangað til nýlega Sean Combs, betur þekktur sem P Diddy. 7. janúar 2026 18:10
„Það mun reyna á okkur hér“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, kveðst sátt við þau svör og skýringar sem utanríkisráðherra hafi veitt á fundi utanríkismálanefndar í morgun vegna þeirrar stöðu sem uppi er eftir aðgerðir Bandaríkjanna gegn Venesúela um helgina. Hún telur ljóst að aðgerðirnar stangist á við alþjóðalög en hún væntir þess að þingnefndin muni eiga enn reglulegri fundi með utanríkisráðherra og fulltrúum ráðuneytisins í ljósi þeirra víðsjárverðu tíma sem uppi eru í alþjóðakerfinu. Það muni reyna enn frekar á stjórnmálamenn hér sem annars staðar að takast á við nýjan veruleika. 5. janúar 2026 15:10