Málstjóri eldra fólks léttir fjórðu vakt kvenna Sara Björg Sigurðardóttir skrifar 6. janúar 2026 08:45 Hvaða kona vill detta út af vinnumarkaði, fara í veikindaleyfi og enda starfsævi sína langt undan sínum kynsystrum. Engin. Það vill enginn kona detta út af vinnumarkaði og ekki eiga afturkvæmt þangað aftur. Hvaða þættir í lífi kvenna á aldrinum 50-66 ára skýra líkindi þess að konur frekar en karlar enda á örorku? Hvers vegna er mikilvægt fyrir okkar samfélag að endurhugsa þjónustu við eldra fólk með fjölbreyttum þjónustuleiðum eins og málstjóra þegar þjónustuþörf vex? Hvernig getur málstjóri eldra fólks einfaldað líf miðaldra kvenna og komið í veg fyrir ótímabæra örorku? Fjórða vaktin sligar konur Tryggingastofnun Ríkisins (TR) fékk Félagsvísindastofnun til að rannsaka reynslu og aðstæður kvenna sem fá greiddan örorkulífeyri. Niðurstöðurnar eru sláandi og varpa skýru ljósi á félagslegar, efnahagslegar og heilsutengdar aðstæður miðaldra kvenna sem hafa um langa hríð verið í meirihluta þeirra einstaklinga sem enda á örorku. Þær eru líklegri til að vera vera einstætt foreldri, eru með lægri menntun og minni tekjur. Þær sinna líkamlega slítandi störfum, detta oftar út af vinnumarkaði vegna veikinda, hafa áfallasögu og eru líklegri til að hafa verið beittar ofbeldi, bæði sem barn og fullorðin og líklegri til að bera oftar ábyrgð á ólaunuðum umönnunarstörfum. Skoðum það nánar. Einföldum lífið fyrir miðaldra konur Hvað eru ólaunuð umönnunarstörfum sem konur eru að sinna? Hvaða þyngri umönnunarbyrði bera konur á örorku umfram konur sem ekki eru á örorku? Hver er fjórða vinna kvenna á örorku? Umönnunarbyrði e. caregiving burden, vísar til þess álags sem konur í þessu tilviki, upplifa vegna ábyrgðar á umönnun annarra, oftast innan fjölskyldu. Tími, umstang og orka sem fer í að sinna börnum, fötluðum, langveikum eða öldruðum skyldmennum. Fjárhagslegt álag og áhyggjur geta skapast vegna minni atvinnuþátttöku, skorts á sveigjanleika í starfi, sem aftur getur leitt út í minnkandi starfshlutfall jafnvel leitt til brotthvarfs úr vinnu. Hvort tveggja eykur bæði andlegt og líkamlegt álag, þar sem umönnun getur verið krefjandi og haft íþyngjandi áhrif á heilsu. Málstjóri eldra fólks léttir fjórðu vaktina Málstjóri er þjónustu brú yfir í viðeigandi úrræði og tekur utan um einstaklinginn og fjölskyldu hans þegar þjónustuþörf vex. Hann samhæfir fagfólk, tryggir réttar greiningar, samfellu í þjónustu, að stuðningsáætlanir og endurhæfing sé gerð ásamt að tryggja ráðgjöf til þeirra sem næst standa. Aðstoða við að tryggja aðgang að mati og/eða greiningu á þörfum, bera ábyrgð á gerð stuðningsáætlunar og stýra stuðningsteymi, fylgja eftir að þjónusta sé veitt í samræmi við hana og veita þeim sem sitja í stuðningsteymi ráðgjöf og upplýsingar um samþættingu þjónustu barnsins. Ég mun tala fyrir málstjóra eldra fólks ásamt fleiri þjónustuleiðum í viðleitni minni til að endurhugsa þjónustu við eldra fólk. Leiðir sem eiga ekki bara að tryggja farsæld eldra fólks þegar þjónustuþörf vex og bæta þjónustu við viðkvæman hóp borgarbúa heldur líka líka til að létta á umönnunarbyrði, fyrirbyggja ótímabæra örorku og einfalda líf miðaldra kvenna. Höfundur er varaborgarfulltrúi, fv. formaður öldungaráðs Reykjavíkurborgar og sækist eftir 3. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar sem haldið verður 24.janúar næstkomandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar