Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Eiður Þór Árnason skrifar 31. desember 2025 15:43 Kamilla Bretadrottning í febrúar á þessu ári þegar hún heimsótti nýtt athvarf fyrir þolendur kynferðisofbeldis í Exeter í Englandi. AP/Justin Tallis Kamilla Bretadrottning greindi í dag frá blygðunarsemisbroti sem hún varð fyrir á unglingsárum. Árásin hafi reitt hana til reiði en hún haldið henni leyndri í fjölmörg ár þar til hún heyrði aðrar konur greina frá ofbeldisreynslu sinni.
Þetta er í fyrsta sinn sem Kamilla tjáir sig um atvikið opinberlega en hún lét ummælin falla í hópviðtali með ættingjum Carol Hunt og dætra hennar Hannah og Louise Hunt. Þær þrjár voru allar myrtar af Kyle Clifford, fyrrverandi kærasta Carol, sumarið 2024. Hefur harmleikurinn varpað ljósi á heimilsofbeldisvandann í Bretlandi. AP-fréttaveitan greinir frá þessu. Kamilla hefur unnið með samtökum sem berjast gegn heimilisofbeldi um nokkurt skeið og sagði að með því að greina frá sinni reynslu vonaðist hún til að geta beint aukinni athygli að ofbeldisfaraldrinum gegn konum. Lengi hafi verið talið óæskilegt að ræða heimilisofbeldi og það leitt til þess að flestir geri sér ekki grein fyrir því hversu slæmt ástandið sé. „Ég var að lesa bókina mína og þessi strákur, maður, réðst á mig og ég barðist á móti,“ sagði Camilla um atvikið við breska ríkisútvarpið BBC. „Og ég man að ég fór út úr lestinni og mamma horfði á mig og spurði: „Af hverju stendur hárið á þér svona?“ og „Af hverju vantar hnapp í frakkann þinn?““ Fjallað um atvikið í bók fyrr á þessu ári Þetta er í fyrsta skipti sem Kamilla tjáir sig opinberlega um árásina sem hún varð fyrir en áður hafði verið greint frá henni í bókinni „Power and the Palace“ sem kom út fyrr á þessu ári. Bókin var skrifuð af Valentine Low sem starfaði áður sem konungsfréttaritari Times of London. Byggði sú frásögn, að sögn AP, á því sem drottningin sagði Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, þegar hann var borgarstjóri í London. Samkvæmt bókinni var Kamilla í lest á leið til Paddington-stöðvarinnar í London þegar maður sem sat við hliðina á henni rétti út höndina og reyndi að snerta hana. Þá hafi hún slegist á móti með því að fara úr skónum sínum og lemja hann í nárann. Síðar hafi hún fundið einkennisklæddan mann á Paddington-stöðinni og sagt honum hvað hefði gerst. Í kjölfarið hafi maðurinn verið handtekinn.
Bretland Kóngafólk Kynferðisofbeldi Karl III Bretakonungur Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira