Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 25. desember 2025 21:01 Sigmundur Davíð á landsþingi Miðflokksins í vetur. Vísir/Lýður Valberg Miðflokkurinn tapaði rúmum 130 milljónum króna á árinu 2024. Flokkurinn stóð uppi með neikvætt eigið fé eftir kosningaárið. Skuldir jukust umtalsvert en í leiðinni fjárframlög lögaðila til flokksins.
Samkvæmt ársreikningi flokksins sem samþykktur var af Ríkisendurskoðun 11. desember síðastliðinn skýrist tapið að stærstum hluta af miklum kostnaði vegna alþingiskosninga. Kosningaliðurinn dýr Rekstrartap flokksins árið 2024 nam 133 milljónum króna samanborið við tæplega 24 milljóna króna hagnað árið þar á undan. Eigið fé flokksins í árslok 2024 var neikvætt um 26 milljónir króna, en hafði verið jákvætt um ríflega hundrað milljónir króna í lok árs 2023. Rekstrargjöld flokksins námu rúmlega 204 milljónum króna og þar af um 141 milljónum vegna alþingiskosninga. Rekstrartekjur flokksins námu um 69 milljónum króna á árinu, þar af rúmum 44 milljónum í framlög úr ríkissjóði og rúmum 6 milljónum frá Alþingi. Framlög frá lögaðilum jukust verulega milli ára og námu samtals um 12,4 milljónum króna, samanborið við um 4,4 milljónir árið áður. Á lista yfir fjárframlög ber mest á fyrirtækjum í sjávarútvegi. 650 þúsund króna framlög veittu til dæmis Hvalur hf., Einhamar, Skinney-Þinganes, Samherji og Síldarvinnslan. Handbært fé þriðjungur af því sem var Skuldir Miðflokksins jukust einnig allverulega milli ára og námu samtals um 116 milljónum króna í árslok 2024. Þar af eru rúmlega 46 milljóna króna skuldir við lánastofnanir sem voru engar árið þar áður. Viðskiptaskuldir jukust sömuleiðis úr tæplega fimm milljónum árið 2023 í rúmlega 66 milljónir í árslok 2024. Handbært fé fór einnig úr um 30 milljón krónum árið 2023 í um tíu milljónir í lok síðasta árs.
Miðflokkurinn Rekstur hins opinbera Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira