Breyta nafni Ölgerðarinnar Árni Sæberg skrifar 18. desember 2025 17:22 Andri Guðmundsson er forstjóri Ölgerðarinnar og verður forstjóri Beru. Vísir/Vilhelm Stjórn Ölgerðarinnar tók ákvörðun á fundi þann 18. desember 2025 að hefja undirbúning að breyttu skipulagi samstæðu Ölgerðarinnar. Nýtt dótturfélag með sama nafni verður stofnað um þá starfsemi Ölgerðarinnar sem snýr að drykkjarvöruhluta fyrirtækisins. Samhliða því verður nafni móðurfélags samstæðunnar, sem verður áfram skráð í kauphöllinni, breytt í Bera.
Þetta segir í afkomutilkynningu Ölgerðarinnar fyrir fyrstu níu mánuði fjárhagsársins. Þar segir að nafnið Bera hafi sögulega og skýra tengingu við Ölgerð Egils Skallagrímssonar, þar sem það sé nafn móður Egils Skallagrímssonar og jafnframt dóttur hans. Eftir breytingarnar verði rekstrarfélögin, Kjarnavörur, Gæðabakstur, Collab, Iceland Spring, Danól, G7-11 fasteignafélag og Ölgerðin systurfélög og í eigu móðurfélagsins sem jafnframt veitir félögunum stoðþjónustu. Skýrari skil milli rekstrarfélaga Undir hatti Beru verði meðal annars mannauðssvið, stafræn þróun, rekstur tölvukerfa, sjálfbærni, rekstur vöruhúsa, innkaup á aðföngum og þjónustu, auk þess sem móðurfélagið muni veita dótturfélögunum þjónustu á fjármálasviði. Þannig megi segja að öll stoðþjónusta verði sameiginleg og þar með hægt að nýta enn betur stærðarhagkvæmni samstæðunnar. Með þessu fyrirkomulagi sé ráðgert að skýrari skil verði á milli einstakra rekstrarfélaga í samstæðunni og að veiting stoðþjónustu frá móðurfélaginu verði skilvirkari. Um leið geti hvert og eitt rekstrarfélag, þar með talin Ölgerðin, einbeitt sér að sinni kjarnastarfsemi. Nýja skipulagið einfaldi jafnframt frekari vöxt með nýjum einingum. Andri stýrir bæði móður- og dótturfélagi Andri Guðmundsson, forstjóri móðurfélagsins Beru, muni jafnframt stýra Ölgerðinni. Þessar breytingar séu háðar leyfisveitingum frá opinberum aðilum og samþykki hluthafafundar Ölgerðarinnar. Til hluthafafundar verði boðað fljótlega á nýju ári þegar undirbúningi verður að mestu lokið. „Dótturfélög Beru verða mun sjálfstæðari með þessum hætti, framtíðarvöxtur hvers félags fyrir sig styrkist, rekstrartölur félaganna verða enn skýrari, vöruþróun eflist og skil milli vinnustaðamenningar og markaðssóknar hvers félags bætist til muna. Með nýju skipulagi nýtist stærðarhagkvæmni móðurfélagsins, til dæmis á sviði stafrænnar umbreytingar, sjálfbærni og sterkri fyrirtækjamenningu, öllum félögunum til góða,“ er haft eftir Andra. Útfutningur skilaði minna en í fyrra Helstu niðurstöður stjórnendauppgjörs Ölgerðarinnar fyrstu 9 mánuði fjárhagsársins 2025 eru eftirfarandi: Vörusala samstæðu Ölgerðarinnar jókst um 4,1% miðað við sama tímabil á síðasta ári. EBITDA fyrstu 9 mánuðina var 3.842 millj. kr. samanborið við 3.872 millj. kr. árið áður. EBITDA Iceland Spring og Collab útflutnings lækkaði um 296 millj. kr. miðað við sama tímabil í fyrra. Innlendur hluti starfseminnar skilar 7% hærri EBITDA og 6% meiri hagnaði en á sama tímabili 2024. Hagnaður eftir skatta var 1.825 millj. kr. samanborið við 1.980 millj. kr. árið áður
Ölgerðin Kauphöllin Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira