Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. desember 2025 20:49 Michele Reiner og Rob Reiner á góðgerðarviðburði í Los Angeles í apríl 2023. Mark Von Holden/Variety/Getty Images Bandaríski leikstjórinn Rob Reiner og sonur hans Nick Reiner hnakkrifust í jólapartýi hjá grínistanum Conan O' Brien á laugardagskvöldið, daginn áður en Rob fannst myrtur á heimili sínu ásamt eiginkonunni Michele Singer Reiner.
Þetta fullyrðir bandaríski miðillinn People og hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum. Líkt og komið hefur fram gekk dóttir þeirra hjóna fram á lík þeirra á heimili þeirra í Los Angeles og tilkynnti lögreglu um fundinn klukkan 15:30 að staðartíma í gær. Spjótin hafa beinst að syni þeirra sem er nú í haldi lögreglu vegna málsins. Lögregla hefur varist allra frétta af málinu. Heimildarmenn People segja miðlinum að hjónin hafi verið í jólateiti hjá Conan O' Brien fyrrverandi spjallþáttastjórnanda og grínista ásamt syni þeirra Nick. Í hið minnsta tveir hafi orðið vitni að heiftarlegu rifrildi milli föður og sonar. „Nick skaut mörgum skelk í bringu með hegðun sinni, hann hagaði sér undarlega og spurði fólk í sífellu hvort það væri frægt,“ er haft eftir heimildarmanninum. Foreldrar hans hafi yfirgefið teitið stuttu síðar. Ekki kemur fram um hvað rifrildið var. Bandaríski slúðurmiðillinn TMZ fullyrðir að Michele hafi ítrekað lýst yfir áhyggjum af syni sínum við vini undanfarna mánuði. Þau hafi reynt allt en lítið getað gert fyrir Nick sem miðillinn segir að hafi lengi átt í vandræðum með fíkn og andleg veikindi. Áður hefur verið rifjað upp að Nick hafi sjálfur rætt vandræði sín á opinskáan hátt við People árið 2016.
Erlend sakamál Hollywood Bandaríkin Morðin á Rob og Michele Reiner Tengdar fréttir Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Leikstjórinn Rob Reiner fannst látinn í gær á heimili sínu í Los Angeles, ásamt eiginkonu sinni. Talið er að þau hafi verið myrt. 15. desember 2025 05:57 Mest lesið Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Vaxandi ótti við langvarandi átök Erlent Fleiri fréttir Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Sjá meira
Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Leikstjórinn Rob Reiner fannst látinn í gær á heimili sínu í Los Angeles, ásamt eiginkonu sinni. Talið er að þau hafi verið myrt. 15. desember 2025 05:57